Ég segi nú bara gleðileg jól !!!
Jæja nú er sælan búin. Ég er að fara að vinna á morgun. Næsta frí er þá bara í sauðburðinum.
En jæja ég er nú búin að hafa það gott í fríinu mínu. Dagur Árni kom í nokkra daga til okkar og það var nú gaman að hafa hann. Ég skrapp suður til að skila honum af mér, og gisti eina nótt hjá Guðrúnu og Nonna. Þau komu hingað 21. og voru hjá okkur yfir jólin. Nonni fór í dag og Guðrún fer á morgun. Þetta er búinn að vera mikill áttími hjá okkur. Jólaboð hjá Siggu og Hauk á jóladag og svo átti að vera jólaboð hjá Helgu og Einari á Króknum, en það þorði enginn að fara vegna veðurs. Eða jú, Þórður vildi ólmur fara, því veðrið var ekki gott. En við fórum ekki. Jæja góður tími að baki. Vinnan tekur við, og daglegt líf.
Ég setti inn albúm sem er af öllum kindunum í Rauðalæk.
Molinn kveður.