20.04.2012 21:13
Nú er stundin runnin upp. Ég er flutt í sveitina, í hjólhýsið, og byrjuð að vakta kindurnar. Ég á nú samt ekki von á lambi fyrr en 23. En það borgar sig að byrja strax að vakta ef ske kynni að það kæmi lamb eitthvað fyrr. Siggi Tumi og Júlli verða hjá mér um helgina, og gista með mér hér. Þeim finnst þetta svo gaman, og segjast vera í útilegu. Það er að vísu rétt hjá þeim. Við erum í útilegu.
Ég fór til sjúkraþjálfans á þriðjudaginn, og hann sá mikinn mun á mér, eftir þessa einu viku. Hann sagði að ég mætti fara að trappa mig niður með það að sleppa fatlanum. Ég ákvað bara að sleppa honum alveg. Fyrsta nóttin án fatlans var aðfaranótt miðvikudags. Það gekk bara vel að vera án hans, og ég hef ekki sett hann upp síðan á þriðjudag. Svo er bara að vera dugleg að gera æfingar. Þær eru nú að vísu sársaukafullar, og þó sérstaklega er vont þegar þjálfinn er að teygja á vöðvunum. Það er helv. pína.
Molinn kveður.
10.04.2012 22:13
Nú á miðvikudaginn, eða á morgun, eru liðnar þrjár vikur frá aðgerðardeginum. Ég er nokkuð góð, þannig lagað, er enn í fatlanum. Ég þarf að vera í honum allan sólahringinn ennþá, og eina til tvær vikur í viðbót. Ég sef í sitjandi stöðu og verð að gera það meðan ég er í fatlanum. Ég fór í fyrsta tímann til sjúkraþjálfans í dag. Það var frekar mikil píning á mér. Hann er nú bara að liðka hendina, svo hún festist ekki alveg. Ég má gera smá æfingar. Passa bara að það takist ekki í það sem saumað var og neglt.
Það gengur vel í vinnunni. Er smásaman að komast inn í þetta. Vá hvað það er rólegra á mér þarna.
Nú eru páskarnir liðnir, og ég fékk alveg 5 daga frí. Hef ekki fengið alla þessa frídaga, um páskana, síðan ég var dagmamma. Semsagt ekki í MS.
Sigurjón kom með strákana, Dag og Jökul, norður um páskana. Þeir gistu hjá Fanneyju. Þeir komu nú og heimsóttu afa og ömmu, bæði heim og í sveitina.
Ég flippaði aðeins með myndavélina um páskana. Var að nota stóru linsuna mína. Ég á nú eftir að nota hana mikið á næstunni, þegar fuglarnir fara að láta sjá sig. Já og lömbin. Það verður gaman að taka myndir af lömbunum þegar þau fara út.
Siggi Tumi kom á miðvikudaginn, og fór á föstudaginn. Og Júlli kom á föstudaginn og fór á sunnudaginn. Þeir voru ekki saman hjá okkur núna. Næst þegar þeir koma, þá verð ég flutt í hjólhýsið mitt í sveitina, og þeir gista hjá mér þar. Ég byrja að vakta féð þá helgi. Vá hvað ég hlakka til.
Næsta laugardag 14. verður ömmugullið mitt 7 mánaða. Vá hvað tíminn æðir áfram. Þau Guðrún og Einar Breki koma svo aðra helgi, í sauðburð. Það verður gaman að sjá hvort Einar Breki fílar sauðburðinn.
Molinn kveður.
01.04.2012 21:23
Í gær, fórum við með félagsmönnum Neista, í menningar og fræðsluferð í Reykjahverfi og Öxarfjörð. Við vorum 15 sem fórum í þessa ferð. Það var alveg hreint mjög gaman að fara þetta. Við byrjuðum á að fara í Skarðaborg í Reykjahverfi. Þar tóku á móti okkur Þórarinn Jónsson, Sigurður Þórarinsson og Helga Helgadóttir. Við skoðuðum kjötvinnsluaðstöðuna, og fé í tveimur fjárhúsum. Við komum svo við í sjoppu á Húsavík, á leið okkar að Þverá í Öxarfirði. Á Þverá tóku á móti okkur, Benedikt Kristjánsson, Erla Ingólfsdóttir og Árni Kristjánsson. Við skoðuðum féð þar. Síðan fórum við að Ærlæk í sömu sveit. Þar tóku á móti okkur Jón Guðmundsson og Guðný Sigurðardóttir. Við skoðuðum fé í tveimur fjárhúsum þar. Svo fórum við að Bjarnastöðum í sömu sveit. Á móti okkur tóku Halldór Olgeirsson og Elín Maríusdóttir. Þar voru líka tvö fjárhús sem við komum í og skoðuðum féð. Við fengum alveg hreint mjög góðar móttökur á öllum þessum bæjum, bæði með góðum veitingum og miklum fróðleik. Það sést vel á myndunum sem ég er búin að setja hér inn. Ég setti inn, 7 albúm úr þessari ferð. Þau raðast ekki í réttri röð, og ég kann ekki að laga það. Ég númeraði þau 1-7 Við enduðum svo ferðina með því að fá okkur að borða á Sölku á Húsavík. Þvílíka flotta ferðin. Takk fyrir allir sem tóku þátt í henni.
Við sprautuðum kindurnar, í dag, seinni sprautuna gegn lambablóðsótt og líka með seleni. Það eru bara 24 dagar eftir í sauðburð :-)
Molinn kveður.