Við settum hrútana í gemlingana, 6. desember.Við settum hrútana í ærnar 8. desember.
Sauðburður byrjar 28. apríl.
Við erum búin að vera dugleg að skrá niður fang þegar við sjáum þær ganga.
Okkur vantar bara burðardagsetningu á 25 kindur af 305. Af þessum 25 kindum eru 14 gemlingar og 11 fullorðnar.
Miðað við þessar dagsetningar, þá ber síðasta kindin 16. maí. Sauðburður verður þá í 19 daga.
Það á nú að vísu eftir að koma í ljós hvort einhverjar gangi upp. Vonandi verður það ekki.
Nú er ég farin að bíða eftir fósturteljaranum okkar, Gunnari. Hann kemur vonandi um miðjan febrúar
Molinn kveður