Við vigtuðum lömbin 16. september.
Meðalvigtin er 44 kg. af öllum lömbunum sem komin eru.
Þau eru 306, en okkur vantar 64 lömb af fjalli.
Við sendum 160 lömb og 7 fullorðin (fjóra sauði, tvo hrúta og eina veturgamla) í sláturhús í gær og þeim var slátrað í dag.
Meðal fallþungi lambanna var 19.7 kg.
Gerðin 10,48
Fitan 8,18
27 lömb fóru í E
78 lömb fóru í U
og rest í R
Þyngsti skrokkurinn var 31,4 kg.
Þessi flekkótti hrútur var 65 kg. Fallþungi hans var 31,4 kg.
Gerð 14
Fita 11
Hann fór í E4
Hann er einlembingur undan 13-388 Ebita félagshrút og 11-058 Ófeigu
Þetta er Rúrí. Henni var slátrað í dag. Hún hefði átt að haga sér betur, því þá hefði hún ekki verið send á sláturhús.
Hér er hún að fara sínar eigin leiðir
Bæsa var slátrað í dag
Og líka Geir
Við létum stiga 9 lambhrúta
Af þeim fengu einn 87,5 stig
Þrír 86,5 stig
Einn 85,0 stig
57 kg. ómv. 36 ómf. 3,8 lögun 5,0 fótl. 111
Haus 8 H+h 9 B+útl 9,5 Bak 9,5 Malir 9 Læri 18 Ull 8 Fætur 8 Samr. 8,5 Alls 87,5
Þessi hrútur er undan 14-577 Bæsa og 11-042 Skessu
53 kg. ómv. 34 ómf. 3,1 lögun 4,5 fótl. 110
Haus 8 H+h 9 B+útl 9 Bak 9 Malir 9 Læri 18,5 Ull 7,5 Fætur 8 Samr. 8,5 Alls 86,5
Þessi hrútur er undan 14-577 Bæsa og 11-042 Skessu
55 kg. ómv. 30 ómf. 4,2 lögun 5,0 fótl. 110
Haus 8 H+h 9 B+útl 9 Bak 9 Malir 9 Læri 18,0 Ull 8,0 Fætur 8,0 Samr. 8,5 Alls 86,5
Þessi hrútur er undan 13-388 Ebita og 12-081 Dokku
Ég er ekki með myndir af hinum hrútunum.
Molinn kveður