Mig langar að byrja þetta á myndum, sem sýna breytingu á fjárhúsunum á Möðruvöllum. Það er með ólíkindum hvað búið er að vinna mikið í að gera þetta að góðum og fallegum fjárhúsum. Þeir eru duglegir þessir bræður, Þórður og Simmi, og við skulum leyfa konunum þeirra að fljóta með.
Svona var þetta í upphafi.
Eitthvað búið að taka til hendinni.
Enn mjög mikið eftir.
Svona er þetta orðið í dag.
Hér verða lambærnar.
Það á bara eftir að setja gólf í helminginn af syðstu krónni. Það verður trúlega gert í sumar.
Jæja af sauðburði er það að frétta, að það eru bornar 11 kindur og komin 20 lömb, 12 hrútar og 8 gimbrar. Af þessum 11, eru 4 gemlingar.
Ég bý í hjólhýsinu í fjárhúsunum, og það fer mjög vel um mig í því. Við gistum 4 í því síðustu nótt. Ég var með tvo gutta, þá Sigga Tuma og Bjössa. Svo gisti Árdís Marín hjá okkur.
23.apríl bar einn gemlingur sem átti tal 27. Ég held að hún hafi fengið einhverja eitrun, því hún var svo veik greyið og lambið fæddist hálf dautt. Við Simmi náðum að koma lífi í það. Það fékk að gista fyrstu nóttina í hjólhýsinu hjá mér, því það var svo veikburða. Ég var svo ánægð þegar ég kom 5 ml. af mjólk ofan í það. Svo varð ég enn ánægðari þegar skammturinn jókst. Og núna sýgur það sjálft mömmu sína. Hún er ekki alveg að sætta sig við litla hrússa, en ég held að hann sigri hana að lokum.
Hann er að verða svo sprækur litla greyið. Þessi mynd er tekin fyrir tveim dögum. Núna er hann aðeins sprækari, en hann lítur út á þessari mynd.
Jæja nú ætla ég fram, að gá að fénu. Ég vakna á tveggja tíma fresti og athuga hvort einhver sé að bera, þannig að það borgar sig að fara að drífa sig í háttinn.
Ég læt inn myndir á morgun.
Molinn kveður.