Við tókum rúnt á hjólunum niður á engi. Við ferjuðum litla hjólið á kerrunni, því litli stubbur getur ekki keyrt á þjóðveginum
Við tókum hjólið af og þá gat hann keyrt það
Hann var stoltur og ánægður að keyra hjólið langa ferð á enginu
Komin á túnið okkar á enginu
Hörgá í miklum vexti
Æðislegt veður í dag
Við hefðum getað verið þarna í allan dag
Afi með stubbinn okkar
Við sáum marga unga, egg og fugla. Þetta er líklegast hettumáfsungi eða ég er ekki viss
Líklegast kríuegg
Veit ekki hvaða fugl á þetta egg
Alexander með kríuunga
Sandlóuungi
Lómapar með unga
Ég þekki ekki kynið, hvor er hvað
Þessi er aðeins minni og gæti því verið kvenfugl
Krían er alltaf flott
Sandlóa. Guðrún Helga þú leiðréttir mig ef þetta er ekki rétt hjá mér
Staðarskarð
Nú þegar vinnan við féð er búin, eða nánast búin, þá er þessi tekinn í notkun. Við tókum rúnt á honum í dag
Við heimsóttum vin okkar á Dalvík og tókum með honum kaffibolla
Molinn kveður