Verið að gera fjárflutningavagninn klárann.Þórður og Simmi að setja framlengingu á kassann. Þetta er rúlluflatvagninn, með fjárflutningakassa á.
Við keyrðum féð á fjall 14. og 15. júní. Við þurftum að fara þrjár ferðir með vagninn og fjórar með kerruna. Það fór á gamla staðinn sinn, sem er Landafjallið. Þær voru ánægðar þegar þær sáu hvert þær voru komnar og röltu glaðar af stað í fjallið. Þegar við losuðum vagn númer tvö, þá tókum við eftir því að það vantaði lambið undan Tabbý. Hún leitaði um allt og var farin að froðufella af jarmi.
Við horfðum vel í kantinn á leiðinni heim, en sáum ekkert lamb. Ég hélt kannski að það hefði stokkið af vagninum heima við fjárhúsin og það kæmi með kindunum þegar við rákum restina inn, en það var ekki. Hvergi var lambið að finna.
Þegar við fórum síðustu ferðina, þá voru augun á mér límd við að horfa í kantinn og athuga með lambið. Já viti menn, ég fann það. Það hafði stokkið af vagninum rétt neðan við Rauðalæk. Það sá ekkert á því. Við náðum að góma það með smá erfiðleikum og fórum með það til Tabbýjar sem tók vel á móti því. Þetta endaði vel sem betur fer.
Það hefði verið sárt að missa þessa flottu gimbur. Hún er svo spræk og flott. Hún fæddist á 10 mín. og kom hlaupandi út
Það var fjör hjá okkur um síðustu helgi. Fimm flottir gaurar. Gekk mjög vel með þá alla Júlli, Einar, Birgir, Siggi og Huginn
Verið að fá sér hressingu í góða veðrinu.
Bjössi bættist í hópinn á sunnudaginn
Það er búið að slá fjárhústúnið. Simmi sló það þriðjudaginn 17. júní. Það er ekki mikill þurrkur núna. Bara rigning. Við náum því vonandi um helgina.
Komnir þrír heimalingar í viðbót. Ég fékk þá að láni hjá Jósavin í Dunhaga. Mig munar ekkert um að gefa þeim um leið og ég gef mínum tveim.
Hafsteinn, frá Hafnarfirði, kominn til að vera í tvær vikur hjá okkur. Það gengur bara vel hjá honum.
Við fórum með Týra og Rex, til að busla á Gáseyri. Þeim fannst það mjög gaman. Týri var hugaðari en Rex. Stökk á eftir spýtum og prikum. Fór oft á bólakaf.
Týri á sprettinum.
Molinn kveður