Gleðileg jól og farsælt komandi ár, kæru vinir. Þakka ykkur fyrir innlitið og kommentin á síðuna mína, á árinu sem er að líða.
Það er aldeilis búið að snjóa. Garðurinn okkar er farinn á kaf í snjó.
Þetta er fyrir framan húsið okkar. Simmi er að blása með snjóblásara í gegnum skaflinn á veginum.
Oft svo fallegt veður eftir svona óveður.
Við þurftum að setja kaggann í framhjóladrifið til að komast upp í fjárhús með Huginn.
Hér eru hænsnakofarnir mokaðir upp, nánast á hverjum degi. Ég fékk góða hjálp við að moka þá upp í gær. Þvílíkt snjómagn. En það fer vel um hænurnar þarna inni.
Þessi mynd er tekin niðri við hurðina á hænsnakofanum. Brattur stigi niður.
Við vorum fjögur hér á aðfangadag. Við Þórður, Huginn og Þórhallur.
Hér er Huginn á aðfangadagskvöld. Svo flott mynd af honum.
Við erum búin að fara í tvö jólaboð, annað á Myrká og hitt í Ólafsfjörð. Svo skruppum við í Skagafjörð, til fjölskyldu Hugins.
Við erum búin að hafa það mjög gott
Fjárhúslífið gengur vel. Þórður sæddi 11 ær. Ég held að 8 af þeim ætli að halda. Við höfum allavegana ekki séð þær ganga upp. Hann sæddi 7 með Þoku Hrein og 5 halda af þeim. Svo sæddi hann 4 með Garra og 3 halda af þeim.
Úff við erum með 44 kindur sem við höfum ekki dagsetningu á því hvenær þær hafa fengið. Fyrstu ærnar fengu 25. nóvember og eiga því að bera 17. apríl og þær síðustu sem við erum með dagsetningu á fengu 23. des. og eiga tal 15. maí. Þá er nú sauðburður kominn í heilan mánuð. Svo er spurning hvort einhverjar eiga eftir að ganga, þá lengist sauðburður enn meira. Við erum svosem vön því að hafa sauðburð í einn og hálfan mánuð
Molinn kveður