Heyskapur er hafinn hjá okkur. Ég ætla að hafa þetta blogg, (eins og í fyrra) bara um heyskap og bæta við það þegar við heyjum meira.
Ég tók þessa mynd upp á Staðarhnjúk. Ég er búin að merkja túnin okkar, fjárhúsið og íbúðarhúsið hér inn. Í viðbót við þetta eru komin tún nr. 8 og 9. Þau eru fyrir neðan og ofan við íbúðarhúsin
1. Nunnuhólsstykkið.
09. maí var borið á einn þriðji skammtur til beitar
18. júní var borið á tveir þriðji skammtur
Það var slegið 01. júlí, snúið þrisvar sinnum. Rúllað 03. júlí og 14 rúllur
2. Lækjarbakkatúnið
09. maí var borið á einn þriðji skammtur til beitar
18. júní var borið á tveir þriðji skammtur
Það var slegið 01. júlí, snúið þrisvar sinnum. Rúllað 03. júlí og 40 rúllur
3. Fjárhústúnið
09. maí var borið á einn þriðji skammtur til beitar
18. júní var borið á tveir þriðji skammtur
Það var slegið 30. júní, snúið þrisvar sinnum. Rúllað 03. júlí og 65 rúllur
4. Frímerkið norðan við skjólbeltið
15. maí var borið á fullan skammt
Það var slegið 7. júní, snúið fjórum sinnum. Rúllað 10. júní og 9 rúllur
18. júní var borið á = þrír sekkir á stykki 4, 8 og 9
Það var slegið í annað sinn, 24. júlí, snúið fjórum sinnum. Rúllað 26. júlí og 7 rúllur
5. Fjallstykkið
15. maí var borið á fullan skammt
Það var slegið 18. júní, snúið fimm sinnum. Rúllað 21. júní og 37 rúllur
6. Prestshólminn
15. maí var borið á fullan skammt
Það var slegið 02. júlí, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 07. júlí og 91 rúllur
7. Karlskofaspildan og Ystaspilda (er í rauninni ein spilda)
19. maí var borið á fullan skammt
Það var slegið 03. júlí, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 07. júlí og 64 rúllur
8 og 9. Þessi tún bættust við. Við köllum þau bara heimatún neðra og heimatún efra.
15. maí var borið á fullan skammt
Þau voru slegin 7. júní, snúið fjórum sinnum. Rúllað 10. júní og 31 rúllur neðra stykkið nr. 8 og 22 rúllur á efra stykkinu nr. 9
18. júní var borið á stykki 8 og 9 = þrír sekkir á stykki 4, 8 og 9
Þau voru slegin í annað sinn, 24. júlí, snúið fjórum sinnum. Rúllað 26. júlí og 24 rúllur neðra stykkið nr. 8 og 20 rúllur á efra stykkinu nr. 9
Rúllað 10. júní 62 rúllur
Rúllað 21. júní 37 rúllur
Rúllað 03. júlí 119 rúllur
Rúllað 07. júlí 155 rúllur
Samtals komnar 373 rúllur
Fyrri/fyrsta slætti, í sumar lokið, 07 júlí
Rúllað 24. júlí 51 rúllur
Samtals komnar 424 rúllur
Hér kemur heyskaparúthaldið þeirra Þórðar og Simma
Áburðardreifari. Liðléttingurinn var notaður við að setja áburðinn í dreifarann
Borið á
Slegið
Snúið
Garðað
Rakstrarvélin
Þeir eiga heldur betur græjur til að heyja
Svo fáum við verktaka til að rúlla
Molinn kveður