Enn vantar okkur 18 hausa. 7 ær og 11 lömb.Af þessum 7 ám eru 3 með tvö, (af þessum 3 er einn gemsi með tvö)
2 með eitt (önnur þeirra var með tvö lömb, en annað hjá henni er komið, þannig að hún er með eitt á fjalli)
1 lamblaus (gemsi)
Og af þessum 7 ám, vantar eina, sem líklegast er dauð, því lömbin hennar eru komin, vigtuð 32 og 33 kg.
Svo vantar okkur þrjú stök lömb (mæðurnar komnar)
Okkur vantar sömu tölu og í fyrra, því okkur vantaði þá, 18 lömb af fjalli sem aldrei skiluðu sér. Við eigum núna vonandi eftir að fá fleiri, allavega samstæðurnar.
Við misstum lamb í gær. Það var lífgimbur sem fór afvelta. Ég held að maður þurfi bara að fara að taka á hús, því ekki vil ég missa fleiri
Við erum farin að beita túnið fyrir neðan íbúðarhúsin
Þarna eru þær ánægðar á beit
Þær bíða við hliðið, eftir því að fá að komast niður á tún
Mjög margar, sem bara bíða eftir góðu grasi til að bíta
Þær koma stundum við á pallinum, til að fá brauð
Hér er 12-065 Þilja, ein af bestu kindunum okkar, með þrjár gimbrar. Strútur er faðirinn. Þetta eru stórar og fallegar lífgimbrar
Hér eru þær í vor. Alveg hreint frábær ær
Svona var þetta í morgun. Veturinn er aðeins farinn að minna á sig
Þessi skógarþröstur flaug á stofugluggann og vankaðist. Hann var smástund að jafna sig áður en hann gat flogið burt.
Svona hef ég séð á nokkrum stöðum í fjallshólfinu. Ég held að þetta sé ekki eftir mýs. Þetta hlýtur að vera eftir rottu
Þarna eru tvær holur og gatið er ca. 10 cm + í ummál.
Molinn kveður