Við settum restina af kindunum (árgang ´11, ´12 og ´13) inn, föstudaginn 6. nóvember. Tommi á Syðri-Reystará kom og klippti þær svo á laugardaginn 7. nóvember.
Þá erum við búin að taka allt á hús, 256 hjá okkur og 8 sem Oddur Bjarni á.
Hrútarnir og svo eru gemlingarnir þarna fyrir innan
Þarna fyrir innan þessar flekkóttu, eru veturgömlu ærnar
Ég held að þær séu bara fegnar að vera komnar inn
Hér eru tveggjavetra ærnar
Við gáfum öllu fénu ormalyf í gær, 15. nóv.
Guðrún Helga og strákarnir fóru heim í dag, eftir að vera búin að vera í heimsókn í 5 daga. Það er frekar tómlegt hér núna. Elsku gullin mín, vonandi sjáumst við fljótt aftur.
Haukur Nói var duglegur að hjálpa ömmu og afa
Einar Breki var líka duglegur að hjálpa ömmu og afa
Nú er hrútaskráin komin á netið og ég er búin að setja inn tengil á hana, hér til hægri
Molinn kveður