Hæ.
Í dag um kl. 14 ætluðum við í sveitina, en sú ferð varð ekki, því við komum við í Lyngbrekku og viti menn heiti potturinn var sleginn út og frosinn. Það var sentimeters klaki á vatninu. Við brutum klakann og tókum hann upp úr. Við fórum svo í bæinn og náðum í heitt vatn í 25 lítra fötur 32 stk. Við jusum vatninu upp úr og heltum úr fötunum sem við náðum í. Þegar við vorum búin að losa allar föturnar þá vantaði helling í pottinn. Við fórum því aðra ferð og losuðum ca. 25 fötur til viðbótar. Þá var potturinn orðinn fullur af mjög heitu vatni. Við gátum svo sett pottinn í samband og loftið kom á en ekki vatnsrennslið. Meira gátum við ekki gert í dag, og við verðum svo að sjá til hvort þetta þiðni í nótt, því við settum hita ofn þar sem dælan er og vonandi verður nógu heitt þar þannig að þetta gangi. Þessi ferð sem átti bara að vera skreppa var frá 14-22. Nú verðum við bara að krossa puttana og sjá til.
Þorrablótið var alveg hreint mjög fínt. Það var semsagt mjög gaman. Við héldum út, til kl. 3:30 í nótt.
Molinn kveður.