Ég er enn að vinna í myndunum af öllum lömbunum. Þetta er svo mikil vinna og tekur tíma. Ég ætla líka að setja hér inn albúm af þeim öllum. Það er í vinnslu.
Í dag ætlaði ég að mynda lömbin sem eru hér upp í fjallshólfinu okkar. Ég náði mynd af lömbunum hennar Birtu, en svo fór nú tíminn í annað.
Hér er hrúturinn undan Birtu og Mökk
Og hér er gimbrin. Falleg lömb
Já tíminn fór í annað eins og ég sagði áðan. Ég var að labba um í skógarreitnum og sá þá tvo pytti þar sem lömb höfðu dottið ofaní og drepist.
Haustið 2014 hvarf lamb, sem við vorum búin að heimta af fjalli. Líklegast er það ofan í öðrum hvorum þessum pytti. Í fyrra haust þá hvarf lamb sem við vorum búin að heimta af fjalli. Ég fann það lamb ofan í öðrum þessum pytti. Fann meirisegja merkið af því lambi. Í vor þegar við vorum að fara með féð á fjall, þá fundum við ekki þrjú lömb. Eitt af því var þarna ofaní. Ég sá merkið af því líka. Hin lömbin eru líklegast þarna ofaní líka.
Þarna er eitt lamb sem við söknuðum í vor.
Við vorum með skóflu og prufuðum að stinga henni ofan í þetta og hún sökk langt niður
Það er þessi flotta gimbur undan Dellu og Nagla sem var þarna, greyið litla
Við stungum upp torfur og settum ofan í pyttina
Þetta er allt annað. Núna dettur enginn ofaní. Við erum oft búin að labba þarna um og höfum aldrei séð þetta
Þessi blindi hrútur hefði auðveldlega getað dottið þarna ofaní. Hann á það til að geta ekki fylgt mömmu sinni eftir, en hún kemur alltaf til hans og nær í hann. Hann hefur stækkað aðeins.
Strákarnir veiddu mús í fötu og voru búnir að vera með hana í viku þegar hún gaut 7 ungum.
Þeir eru fljótir að stækka. Þeim verður svo sleppt þegar þeir eru tilbúnir til þess.
Það var skrítið ský sem birtist á himninum í gærkvöld
Týri reyndi að reka þetta í burtu. Fannst þetta eitthvað ógnvekjandi
Molinn kveður