Ég labbaði upp í fjallshólf í morgun til að kíkja á hrútana. Ég tók myndir af þeim, en þær eru nú ekki nógu góðar, því það var svo rennandi blautt grasið og þar af leiðandi voru hrútarnir frekar blautir
14-571 Nagli. Ætt Nagla. Nagli-Skrúfa-Mörk-Botna.
Faðir 09-861 Dalur
14-572 Drýsill. Ætt Drýsils. Drýsill-Tajna-Tabbý-Botna
Faðir 09-892 Dolli
14-573 Bekri. Ætt Bekra. Bekri-Pjökk-Ösp-Perla-Sæla-Botna
Faðir 13-388 Ebiti
14-574 Eros. Ætt Erosar. Eros-Tugga-Gríma-Tabbý-Botna
Faðir 10-931 Radix
14-575 Geir. Frá Myrká
Faðir 12-560 Jarl Móðir 07-013 Húfa
14-576 Örvar. Frá Litla-Hofi í Öræfasveit
14-577 Bæsi. Frá S-Bægisá
Faðir 10-903 Hængur Móðir 08-135
14-578 Greifi. Frá Þrasastöðum í Fljótum
Faðir 11-092 Chapplin Móðir 11-225
Þetta er Tabbý. Hún var amma hans Drýsils og langamma hans Erosar. Hún var ömmusystir Nagla og langa,langaömmusystir Bekra
Þetta byrjaði allt hér. Hér er Botna (gemlingur) formóðurin með Tabbý. Það eru mjög margar kindur sem við eigum undan þeim.
Drýsill, 26.08.15
Drýsill, 11.10.14
Nagli, 26.08.15
Nagli, 11.10.14
Þar sem ég var að ganga um fjallshólfið, rakst ég á þennan hrossagauksunga. Greyið litla. Ég held að hann verði ekki orðinn nógu stór til að lifa af og komast af landi brott, það er orðið svo áliðið. Mamman var hjá honum.
Damian að bíða eftir skólabílnum. Honum finnst gaman að fara í skólabílinn og skólann. Alltaf jafn spenntur.
Skólabíllinn að koma með Damian heim
Myndir í albúmi
Molinn kveður