Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1233
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 2846
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 3399268
Samtals gestir: 95594
Tölur uppfærðar: 3.5.2026 06:39:08

Færslur: 2026 Maí

02.05.2026 20:04

Lambær úti í nótt

Við settum 22 lambær út í morgun og ætlum að láta þær

vera úti í nótt. Ef veðrið verður vont, þá setjum við þær bara

inn

Við erum með nóg pláss þótt við þurfum að hýsa á nóttunni

 

Það eru 24 ær eftir að bera. Það hefur gengið vel hingað til

 

 

Molinn kveður

 

 

01.05.2026 16:44

Frekar kalt í dag

Við settum 43 lambær út í morgun og svo aftur inn seinni

partinn. Þær hafa gott af því að viðra sig aðeins, þó það sé

kalt

Það snjóaði smá annað slagið í dag

24-054 Egedía bar í morgun og átti tvær gimbrar. Þær eru

undan 25-744 Emax

23-044 Eyvör bar í dag og átti hrút og gimbur og þau eru

undan 25-739 Eljari

 

Það er eitthvað skrítið með Elízu. Hún átti tal 27. apríl. Það

var talið í henni 2 fóstur. Það kemur ekkert undir hana og

það er eins og hún sé ekki með lömb. Kannski hefur hún

látið. Það kemur í ljós seinna

Þessir gistu með mér í fjárhúsunum í nótt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

7 mánuði

19 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

9 mánuði

22 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

3 mánuði

20 daga

Tenglar

Eldra efni