Við sprautuðum allt féð, seinni sprautuna gegn
lambablóðsótt, í morgun
Við notuðum auðvitað vigtarganginn
Hrútarnir að bíða eftir stungu
Þórður að sprauta ærnar í ganginum
Hann var svo óheppinn, að hann sprautaði sig sjálfan óvart.
Það var ein svo óþekk að hún hentist til og nálin fór í Þórð
og bóluefnið líka. Það var nú ekki gott
Allar búnar að fá sprautu og farnar að éta
Strákarnir eru veðurtepptir fyrir sunnan. Þeir koma á morgun
Molinn kveður
Gleðilega páska kæru síðuvinir
Nú eru allir farnir heim til sín. Búið að vera mikið fjör hér
Og svo er einn kominn til baka, úr páskafríinu, af strákunum
okkar. Tveir koma á morgun, þar að segja ef það verður
flogið frá Reykjavík
Stéttin var auð í gær. Það snjóaði svona mikið í nótt
Það þurfti að moka stéttina og bílaplanið í dag
Aðeins að prufa sleðann
Systradætur, ömmu og afa gull
Við fórum aðeins í göngin. Það var ekki hægt að fara á
sleðanum í gegnum þau
Við höfum alltaf haft páskaeggjaleit hér í garðinum. Það er
ekki hægt núna, því það er snjór í honum. Við ákváðum að
hafa eggjaleitina í fjósinu. Það tókst bara mjög vel og allir
fundu eggin sín
Bara gaman hjá þeim öllum.
Gleðilega páska
Morgungjöf lokið
Gemlingarnir eru orðnir þungir á sér
Gemlingarnir
Föstudagurinn langi og þá er það grill. Svakalega góður
matur
Ömmu og afa gullmoli kom í dag, ásamt móður sinni og
systur og ætla að gista hjá okkur í tvær nætur
Við mokuðum út, úr krónni hjá gemlingunum. Við tókum
bara nokkrar hjólbörur svona rétt til að láta þetta sleppa
út veturinn sem er jú að verða búinn
Ég mokaði í hjólbörurnar og Þórður hjólaði út
Hann losaði í skófluna á Avantinum
Og keyrði það frá
Við gerðum bara þessi tvö bil. Þá erum við búin að moka út
þar til í sumar/haust
Ég tók nokkrar myndir af Snjótittlingum í dag. Hér koma
þær
Þessi hvíti er að breytast í Sólskríkju
Tveir farnir í páskafrí og einn eftir hjá okkur
Nafn:
Farsími:
Tölvupóstfang:
Afmælisdagur:
Heimilisfang:
Staðsetning:
Um:
Einar Breki, kom í heiminn
atburður liðinn í
14 ár
6 mánuði
22 daga
Haukur Nói, kom í heiminn
11 ár
8 mánuði
25 daga
Birgitta Ósk, kom í heiminn
4 ár
2 mánuði
23 daga
Eldra efni
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is