Gleðileg jól og farsælt komandi ár með þökk fyrir árið sem er að líða, kæru síðuvinir.
Já ég er á lífi. Ég er búin að vera mjög upptekin og hafa mikið að gera í desember. Núna ætla ég að fara að standa mig betur í skrifum hér.
Þeir hafa það nú gott, Týri og Snati. Hér liggja þeir á meltunni. Þeir fengu það í jólagjöf að fá að liggja á þessari mottu. Komnir inn fyrir þröskuldinn, en fara ekki lengra.
Við heimtum eina gimbur núna rétt fyrir jólin. Hún er vel á sig komin. Hún var á Féeggsstöðum og kom á Þúfnavöllum. Móðir hennar heimtist síðust af ánum og kom á Þúfnavöllum líka, með hina gimbrina. Þessi hefur orðið viðskila við þær. Þetta var ein kind og 5 lömb, þar af eitt hrútlamb, sem fannst, þannig að það má búast við því að hún sé fengin.
Þessi fallegi drengur, ömmugullið mitt, kom í heimsókn til okkar ásamt mömmu sinni, 11.-16 desember. Ég tók mér frí í vinnunni 12, 13 og 16 desember til að njóta þeirra. Þau koma ekkert um jólin
Nú fer fengitíminn að taka enda. Við erum búin að skrá allar kindurnar sem við höfum séð ganga. Við erum þá með burðardagsetningu á þeim. Þórður sæddi 12 kindur. Við notuðum fjóra hrúta í það. Garra, Dolla, Dal og Snævar. Við erum búin að sjá tvær af þeim ganga upp. Vonandi halda hinar.
Við erum búin að hafa það gott það sem af er jólunum. Við vorum með 30 manna jólaboð á jóladag og erum svo með annað jólaboð á sunnudaginn, sem verður aðeins stærra.
Hænurnar hafa það gott í kofanum. Þær verpa frá einu upp í sex eggjum á dag. Standa sig vel.
Ég er búin að setja inn myndir.
Molinn kveður.
N/A Blog|WrittenBy Birgittu