Það eru 5 bornar það sem af er þessum sólahring. 12 lömb fæddust, en 11 á lífi. Eitt hefur drepist fyrir ca. viku
Þetta er 15-218 Kæna. Hún átti tvær gimbrar undan 16-575 Gera. Hún bar í nótt
11-313 Glæsa þrílembd. Einn hrútur og tvær gimbrar. 16-571 Þyrill er faðirinn. Hún bar í nótt. Við tókum hrútinn undan henni og vöndum undir 15-294 Fleytu, þannig að Glæsa verður með gimbrarnar. Önnur þeirra er frekar lítil en vel spræk
15-204 Fleyta bar í morgun þremur gimbrum. Ein þeirra hefur drepist fyrir ca. viku. Faðirinn er 16-577 Ári. Við ákváðum að venja hrútinn undan Glæsu undir hana, í bili, vegna þess að hún er betur á sig komin með þrjú, en Glæsa.
15-201 Björk bar tveimur hrútum í morgun. Þeir eru undan 16-577 Ára.
16-287 Molla bar hrút og gimbur núna seinnipartinn. Þau eru undan 16-575 Gera. Hrúturinn er aðeins stærri en gimbrin.
Þetta er 16-269 Skráma. Hún átti litla gimbur, undan 13-390 Andrési. Hún var borin þegar ég kom í fjárhúsin eftir kvöldmat.
Þá er staðan svona 17 gimbrar og 10 hrútar. Þessar tölur eiga við lömb á lífi
Ég ætla að bæta við þetta blogg, á morgun, ef það bera einhverjar í viðbót á þessum sólahring
Já ég bætti einni við.
Lambærnar með elstu lömbin fengu að fara út í dag. Þær eru fjórar með sjö lömb. Þrír gemsar og ein veturgömul
Þau kúra sætt saman lömbin undan Tildru, Trefill og Þyrnirós
Hrútarnir undan Björk
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu