04.06.2025 19:53
 |
20-498 Hrifla með hrút og gimbur undan 24-731 Galsa
 |
20-496 Fnjósk með kónginn og drottninguna og faðir þeirra
er 24-737 Þyt
 |
Það kom aldrei snjór hér, gránaði bara í fjallið
 |
Sólin að reyna að brjótast í gegn
 |
Gimbrar undan 23-053 Lúpínu og 22-717 Vívalda
 |
Hrútur undan Kópíelu að fíla grön
 |
Nokkrar ær inni og hafa það gott
Við hýstum ekkert, en vorum með opið fyrir þær
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
03.06.2025 18:09
 |
Þessi mynd var tekin um kl. 12 í dag. Það er búin að vera
rigning og rok, en ekki fest snjó nema upp í fjalli. Kindurnar
eru mikið á beit, en fara líka inn í fjárhús. Það er svona
pínu ráp á þeim
 |
Kindurnar rápa inn og út
 |
Sumar leggja sig inni
 |
En það er opið fyrir þær og þær fara inn að vild
 |
Við fengum þennan langömmu og langafa gullmola í
heimsókn í dag ásamt foreldrum hans. Hann er tveggja
ára og við vorum að sjá hann í fyrsta skiptið. Við höfum
bara séð hann á myndum. Hann býr í Noregi
 |
Fallegi langömmu og langafa gullmoli
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
02.06.2025 18:39
 |
Víkingur kom klifjaður af viðurkenningum heim úr skólanum
í dag, af Þelamerkurleikunum. Hann var 5 sinnum í 1. sæti
 |
Algjör íþróttakarl 
 |
Alexander var í 1. sæti í stígvélakasti
 |
Flott hjá honum 
 |
Og Rikki var í 1. sæti á vorleikunum í skólanum hans
 |
Glæsilegt hjá honum 
 |
Við opnuðum fjárhúsin fyrir kindurnar í gær. Veðrið á að vera
mjög slæmt í nótt og á morgun. Þær komu nokkrar inn, en
stoppuðu ekki lengi inni
 |
Það er ekkert svo mikið að veðrinu ennþá, en það gæti orðið
vont í nótt
 |
Núna í kvöld eru kindurnar farnar að koma inn. Það verður
opið fyrir þær í nótt. Vonandi verður ekkert úr þessu veðri
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
01.06.2025 18:55
 |
Við fórum aftur smá rúnt á húsbíl. Það er annar húsbíll. Við
eigum tvo húsbíla. Við vorum að prufa þennan og athuga
hvort það virkaði ekki allt í honum. Hann stóðst væntingar.
Hjólhýsið sem við áttum fór uppí. Við fórum til Dalvíkur og
Ólafsfjarðar og heim aftur
 |
Simmi sló lóðina okkar. Hann smíðaði skúffu, já frekar stóra
til að geta bakkað sláttutraktornum í, til að losa grasið
 |
Hér sjáið þið þessa stóru skúffu. Hann er snillingur
 |
Svo er bara að fara með skúffuna og losa grasið. Það þarf
ekki að handmoka uppí
 |
Tvöfaldur regnbogi í dag
 |
Svo kom annar regnbogi seinna í dag. Þórður komst undir
bogann og líklegast hefur hann óskað sér
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu