Við fengum 5 hausa í dag. Tvær ær og 3 lömb. Þetta eru tvær tvílembur. Annað lambið hjá annari þeirra var komið heim.Þá vantar okkur 28 hausa, 11 ær og 17 lömb
Ég tók nokkrar myndir í dag
15-219 Stroffa kann að bjarga sér. Hér er hún að teygja sig í nokkur lauf
Systur. Þessi mórauða er 10-023 Brák, undan 08-010 Zeldu og 03-989 Kalda og þessi hvíta er 12-080 Gola, undan 08-010 Zeldu og 08-872 Þristi. Þær hafa verið þrí- og fjórlembdar til skiptis. Miklar frjósemisær
11-315 Gulbrá með tvær gimbrar. Hrúturinn vildi ekki vera með á mynd
Hrútur undan 12-077 Hröfnu og 16-574 Strút
Og hér er hinn hrúturinn undan Hröfnu og Strút
Hrútur undan 14-163 Flækju og 16-576 Liða
Hrútur (þrílembingur) undan 14-155 Rifu og 16-576 Liða
og gimbur undan 14-157 Snerru og 16-574 Strút
Þessar eru að bíða eftir brauði
16-278 Seigla er orðin flott. Hún var heimalingur í fyrra
15-224 Menja
12-080 Gola
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu