Við fórum í dag, á Sveitasælu í Skagafirði. Alveg hreint frábær dagur í alla staði. Það er orðinn árlegur viðburður hjá okkur að mæta þangað
Guðni forseti Íslands setti Sveitasæluna
Guðrún formaður Bændasamtaka Íslands ávarpaði gesti
Sigvaldi Helgi og Bergrún Sóla komu fram og sungu. Mjög flott hjá þeim
Svo var það hrútaþukklið
Vinningshafar í hrútaþukkli
Axel Kárason dýralæknir var með sýningu á klaufsnyrtibásnum
Það var margt um manninn
Kálfasýningin var á sínum stað
Þessi bás var með þeim allra flottustu á svæðinu. Kristbjörg María Bjarnadóttir, Neðri-Vindheimum, var með þennan flotta bás. Hún gerir allskonar myndir og það flottar myndir. Ég á eftir að kaupa af henni myndir
Margar flottar vélar og tæki voru á svæðinu
Peysurnar okkar voru valdar sem fallegustu peysurnar á Sælunni. Við fengum þessar gærur í verðlaun fyrir það. Dóttir okkar Guðrún Helga á heiðurinn af þessum peysum. Þær eru ÆÐISLEGAR
ALVEG HREINT FRÁBÆR DAGUR
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu