Þá eru kindamyndirnar LOKSINS komnar á hlöðuhurðina í fjárhúsunum. Meira hvað maður getur trassað hlutina. Þónokkuð síðan við prentuðum þær.
Þægilegt að hafa þetta í fjárhúsunum
Guðrún Helga, Einar Breki og Haukur Nói komu í heimsókn helgina 15.-17. janúar. Einar Breki fékk að vera eftir hjá ömmu og afa. Hann var hjá okkur viku í viðbót, eða til 24. janúar. Það var svo gaman að fá að hafa hann. Ég er strax farin að sakna hans
Við tókum hrútana úr fénu, 23. janúar. Nú styttist í talningu. Úff hvað ég er spennt. Get varla beðið.
Þvílíkt ástand á túnunum. Þetta er fjárhústúnið okkar og það er klaki yfir því öllu. Vonandi verður ekki kal eftir þennan vetur.
Það var mikið að gera hjá þessum guttum um helgina. Einar Breki, Damian og Aron.
Eitt finnst mér merkilegt. Það eru systur, sem ólust ekki upp saman. (Önnur gekk undir móðurinni og hin var vanin undir aðra kind). Þessar systur eru mjög samrímdar. Þær eru oft saman í krónni og oft hlið við hlið þegar þær eru að éta.
Þetta eru systurnar (þessar flekkóttu). Þær finna einhver tengsl sín á milli þó þær hafi ekki gengið saman undir.
Búið að setja upp hlið, til að geta hringrekið.
Það eru komin tvö hlið. Það á eftir að setja þriðja hliðið og svo á eftir að saga garðaendann til að geta rekið þar í gegn.
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu