31.10.2022 19:49
 |
Úti þvottadagur í dag. Við þvoðum gluggana að utan. Ekki
veitti af, því þeir voru orðnir mjög skítugir
 |
Og vestur veggurinn var líka mjög skítugur. Sá skítur kom
þegar veðrið var brjálað um daginn
 |
Við náðum að þrífa hann að mestu
Molinn kveður
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
30.10.2022 20:10
 |
Við héldum áfram með hitaþráðinn
 |
Þórður að störfum. Hann náði að klára þetta
 |
Grænn hitaþráður við vatnsrörið. Það ætti allavega ekki að
frjósa undir gólfinu, í vetur
 |
Þráðurinn kominn í samband og byrjaður að hita vatnsrörið
Molinn kveður
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
29.10.2022 19:11
 |
Þessi gullmoli er pabbi minn og hann á afmæli í dag. Til
hamingju með afmælið elsku pabbi 
 |
Megnið af deginum eyddum við í fjárhúsunum
 |
Við vorum að setja hitaþráð við vatnslögnina sem liggur
undir gólfinu. Við þurftum að taka grindurnar upp til að
komast að vatnslögninni
 |
Við verðum með færri kindur í vetur og erum að reyna að
varna því að vatnið frjósi
 |
Þetta gekk alveg þokkalega vel. Við kláruðum ekki alveg, en
klárum á morgun
 |
Þetta merki kemur á götuna, þegar maður kemur að bílnum
í myrkri. Lýsir upp götuna Ford mustang 
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
28.10.2022 19:11
 |
Hvammshlíðardagatalið er komið í hús. Karólína er engum
lík. Hún er snillingur í öllu. Ég mæli með þessu flotta
dagatali
 |
Það er svo margt fróðlegt sem kemur fram í þessu dagatali
 |
 |
 |
Hún er virkilega vel að þessum hvatningarverðlaunum komin
 |
Staðarhnjúkur
 |
Í morgun
 |
Í kvöld
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
27.10.2022 18:57
 |
Við tókum sýni úr ásetningslömbunum. Við tökum svo sýni
úr ánum þegar þær eru komnar á hús
 |
Stararnir komu í garðinn í dag. Þeir voru eitthvað um 20
saman
 |
Þetta er fallegur fugl
Molinn kveður
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
26.10.2022 17:59
 |
Yfirlitsflug í dag og þessar ekki langt frá hvor annari. Þær eru
flottar saman. Þær fá að vera saman í kró í vetur
 |
Nokkrar á hólnum
 |
Fallegt veður dag eftir dag
 |
Það sést vel inn í Staðarskarðið
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
25.10.2022 18:51
 |
Kindurnar eru enn úti. Við fórum með brauð til þeirra og
þær þáðu það með þökkum
 |
Búbba með brauðsneið
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
Þær verða úti eitthvað lengur
 |
Gemlingarnir okkar
Ásetningur ´22-´23
Árgangur ´13 - 1 ær
Árgangur ´15 - 10 ær
Árgangur ´16 - 14 ær
Árgangur ´17 - 25 ær
Árgangur ´18 - 30 ær
Árgangur ´19 - 19 ær
Árgangur ´20 - 24 ær
Árgangur ´21 - 8 ær
Árgangur ´22 - 17 gemlingar
Hrútar 11
Sauðir 6
Smálömb 7
Samtals 172 hausar í vetur
Það eru nokkrar ær, sem hefðu átt að fara í sláturhús,
en björguðu sér með því að koma með lamb/lömb í
sumar/haust
Við ætlum svo að sjá til með gemlingana hvort við
hleypum til þeirra allra eða sleppum nokkrum
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
24.10.2022 18:40
 |
Við settum upp skilrúm í syðsta húsinu. Við vorum að hugsa
um að sleppa því að setja það upp, en ákváðum að það væri
betra að hafa það
Við tókum til úti, við fjárhúsin, íbúðarhúsið og refaskálann,
í gær. Við fórum með fulla kerru af rusli, í morgun, í Terra
Akureyri. Gott að hreinsa svona til áður en snjórinn kemur
 |
Ég flaug drónanum yfir kindurnar. Það var alveg merkilegt
að sjá þessar tvær vera saman, eða þannig. Þær eru alltaf
saman þessar flottu systur
 |
Staðarhnjúkur og Staðarskarð
 |
Hörgáin
 |
 |
Möðruvellir 3, 4 og 5
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
23.10.2022 18:59
 |
Fallegt veður bæði á morgnana og kvöldin. Þessi er tekin í
morgun
 |
Og þessi seinni partinn
 |
Tunglið í dag. Ég held að ég hafi aldrei séð það svona lítið
 |
Stari, vinur okkar
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
22.10.2022 18:45
 |
Við settum fullorðinsmerkin í öll lömbin, í dag. Gorma
 |
Haddý
 |
Ágústa og litlu lömbin fengu líka merki
 |
Tekið úr fjallshólfinu
 |
Kindurnar á beit í kálinu
 |
 |
Þær nota þennan hól mikið
 |
Elíza og samrýmdu systurnar, Læpa og Læna. Þær eru alltaf
saman
 |
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
21.10.2022 16:24
 |
Já, há, það hvellsprakk á bílnum. Það er nú ekki oft sem dekk
springur nú til dags. (Skeði oft í gamla daga) Ég var á bílnum,
náði ekki að losa varadekkið (það er undir bílnum). Það var
fast og ekki hægt að losa það. Enginn tjakkur og lykill í bílnum.
Eða ég veit ekki hvar það er. Leitaði mikið. Ég hringdi í vin (Þórð)
og hann kom með tjakk og lykil. Við tókum dekkið undan og
fórum með það á verkstæði, ásamt einu nagladekki.
Nagladekkið var sett á felguna og núna er bíllinn á þremur
sumardekkjum og einu vetrardekki. Næsta skref, hvernig
losar maður varadekkið og hvar er tjakkurinn og felgulykillinn
í bílnum. Við verðum að komast að því 
 |
Jæja þessi snjósleði er okkar. Við erum að kaupa hann. Það
verður gaman að draga strákana á skíðum/bretti í vetur
 |
Geggjað verður að eiga sleða 
Molinn kveður
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
20.10.2022 20:03
 |
Við fórum í þetta verkefni í morgun, að setja niður gólfið
í syðsta húsinu
 |
Komin langt á veg
 |
Og búin að setja gólfið niður
 |
Og búin að setja hurðina í. Svakalega gott að þetta verkefni
er búið. Nú förum við að dunda okkur í fjárhúsunum
 |
Ég er búin að gera Ljúf gæfan. Hann elskar klapp
 |
Drangi
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
19.10.2022 19:01
 |
Flottur himinn í morgun
 |
 |
 |
Við fórum á Sauðárkrók í morgun til að ná í kjöt. Það var
sumarfæri og gott veður
Það er búið að vera rok, hér á Möðruvöllum, í nærri tvo
sólahringa. Það má nú alveg fara að lægja
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
18.10.2022 19:03
 |
Þá er það þriðja og síðasta húsið sem fær skítmokstur. Við
tókum upp gólfið í syðsta húsinu í dag. Mikið verður nú gott
þegar þetta verður búið
 |
Tilbúið fyrir mokstur
 |
Vel gert. Simmi ekki lengi að þessu
Gólfið verður sett niður á fimmtudaginn
Molinn kveður
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu
17.10.2022 18:41
 |
Fallegt seinni partinn í dag
 |
 |
Staðarhnjúkur
 |
Tekið út um stofugluggann
 |
Nágrannar okkar að fljúga yfir
 |
18-408 Elín átti tvo hrúta og þeir vigtuðu 54 kg. hvor.
Fallþunginn var 26,6 og 26,3 og fóru báðir í U 3
Já hún skilaði 52,9 kg. af kjöti
Molinn kveður
|
|
|
|
|
|
|
|
N/A Blog|WrittenBy Birgittu