Við sprautuðum alla gemlingana og lambhrútana fyrri sprautuna gegn lambablóðsótt. Það var gert 28. febrúar.
Við keyptum 18 kindur. Tommi kom og rúði þær 1. mars.
Við sprautuðum þær gegn lambablóðsótt og gáfum þeim ormalyf, 2. mars.
Dagur og Jökull komu til okkar 3. mars og voru í þrjá daga. Það var gaman að fá þá í heimsókn.
Það er búið að vera gott veður í marga daga, já eða nánast í allan vetur. Við höfum notað marga daga í útiveru. Sleðar, bretti, fjórhjól og fleira
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu