Við fórum í hrútaferð, á Strandir.Við lögðum af stað frá Möðruvöllum um kl. 9, 22. september.
Stoppað var á nokkrum stöðum á leiðinni.
Fyrstu fjárhúsin sem við heimsóttum var á Heydalsá 1. Síðan var farið á Heydalsá 2, þaðan í Smáhamra og að lokum fórum við í Broddanesi.
Að loknu þessu þukli, beið okkar þvílíkt ljúffengur kvöldverður að Sævangi (Sauðfjársetrinu)
Hópnum var skipt upp og nokkrir fóru í gistingu í Hólmavík og aðrir gistu á Kirkjubóli.
Daginn eftir var farið í Árbæ, Reykhólasveit. Þegar búið var að þukla þar og velja lömb, fórum við og sóttum lömbin sem valin voru deginum áður.
Við fengum mjög góðar og hlýjar móttökur á öllum þessum stöðum.
Við vorum svo komin heim um kl. 22.
Flottur hópur
Ég er búin að setja inn nokkrar myndir (í myndaalbúm) úr ferðinni
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu