Við fórum á kindarúntinn í morgun. Við sáum nokkrar kindur. Sumar voru frekar hátt uppi. Þarna sem örin bendir á, eru tvær kindur. Ég er með þær á næstu mynd
Aðdráttarlinsan að gera sig
Já svona er nú hægt að nota linsuna
Þetta eru þær Mógolsa og Slenja. 12-217 Mógolsa er á efri myndinni, með tvær gimbrar undan 13-953 Dreka og á neðri myndinni er 12-087 Slenja með hrút og tvær gimbrar undan 17-582 Maríó. Mér sýnist að þrílembingarnir séu nú frekar litlir
Við sáum fleiri kindur og þær voru aðeins neðar
14-174 Snudda með hrút (hægra megin) og gimbur undan 16-152 Hrók. Hún átti þrjú, aðra gimbur og hún var vanin undir 17-351 Áru
16-259 Kylja með hrúta undan 16-571 Þyrli
15-199 Buna með hrúta undan 17-579 Forna
13-105 Korga með gimbrar undan 17-583 Lagga
13-604 Grýla með gimbrar undan 17-588 Varíusi. Hún átti þrjár gimbrar og ein þeirra var vanin undir 16-290 Evu
11-057 Tjara með gimbrar undan 16-574 Strút
Mér sýnist stefna í að lömbin verði væn í haust
Það rættist úr óskinni hans Júlla. Hann fékk að fara á bak. Þór og Sigga Stína í Skriðu leyfðu honum að fara á hestbak. Takk enn og aftur kæru vinir fyrir að láta óskina hans rætast. Hann sagðist vera mjög glaður með ykkur
Molinn kveður
N/A Blog|WrittenBy Birgittu