Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 3303
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 5590
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 2551688
Samtals gestir: 91347
Tölur uppfærðar: 17.9.2025 09:15:42

11.06.2009 21:47

Fríið að verða búið

Halló !!!!

Jæja það er farið að ganga á fyrra fríið hjá mér. Á bara eftir næstu viku. En það sem búið er af fríinu er búið að vera dásamlegt. Ég er í Lyngbrekku alla daga  og það er alveg toppurinn á tilverunni. Ég á nú ekki eftir að mála mikið. Bara ein hlið og þakið eftir. Ég beið eftir málningar veðrinu í dag, en það kom ekki, gat ekkert málað. En ég sauð saltað hrossakjöt og gerði stöppu, tók nokkrar sudako og lagði kapal. Var semsagt í algjörri afslöppun í dag. Kanínan heimsækir mig reglulega. Hún kemur á hverjum degi, og ég gef henni brauð. Potturinn er líka notaður, mamma og pabbi fóru í hann með mér í gær. Svo kom Guðrún í heimsókn með hundinn sinn hana Fjólu, og Áslaug og Ríkey komu með köttinn sinn hann Edda. Svo kemur Þórður seinnipartana. Hann er að smella í frí núna um helgina held ég, og þá verðum við bæði næstu viku í Lyngbrekku.

Molinn kveður.


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

3 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

2 mánuði

5 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

3 ár

8 mánuði

3 daga

Tenglar

Eldra efni