Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 488
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2149
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 865399
Samtals gestir: 46746
Tölur uppfærðar: 19.3.2024 10:52:33

Færslur: 2009 Maí

30.05.2009 09:49

SUMARFRÍ

Góðan dag hér !

Hér er nú allt gott að frétta síðan síðast. Sauðburði lokið 24. maí. Það fæddust 83 lömb, 75 á lífi.  46 gimbrar og 41 á lífi,  37 hrútar og 34 á lífi, semsagt 5 gimbrar og 3 hrútar fóru yfir móðuna miklu.

Nú er ég búin að taka sumaröskrið mitt, ÞVÍ ÉG ER KOMIN Í ÞRIGGJA VIKNA FRÍ. Nú er það bara að eyða tímanum í Lyngbrekku og bera á viðinn og mála. Ég er nefnilega ein á þessu heimili komin í frí. Þórhallur fær náttúrulega ekkert frí, og Þórður kemst ekki í frí fyrr en eftir tvær vikur, þannig að ég verð ein að dunda mér í Lyngbrekku á daginn. Ég fæ svo elskuna mína, hann Þórð, seinnipartana til mín.

Við fórum í Lyngbrekku í gær og við fengum óvænta heimsókn þangað, já þessi kanína kom í heimsókn.


Molinn kveður.

12.05.2009 00:00

Jólin að verða búin

Halló !!!

Jæja nú er fríið mitt búið og vinnan tekin við að nýju. Hefði nú viljað vera í fríi þessa viku líka.

Sauðburður er að verða búinn á Rauðalæk. Bara tvær eftir að bera. Þetta er búið að vera alveg hreint frábært að geta verið á staðnum þegar lömbin fæðast. Ég get líkt sauðburði við jólin. Þegar verið er að taka upp pakkana, eru litlu krakkarnir spenntir að vita hvað er í þeim. Eins er það með mig, að sjá hvað kemur úr hverri kind. Hvað mörg lömb og hvernig þau eru á litin. Þetta er skemmtilegri tími en allt annað. Við Guðrún Helga og Dagur Árni fengum að gista þarna í viku. Mig langar að þakka Ogga, Áslaugu, Sumarliða og Stefaníu alveg kærlega fyrir okkur. Þetta var tær snilld.
Það eru fædd 81 lömb, en við mistum 8 af þeirri tölu þannig að það eru 73 á lífi. Svo eiga tvær eftir að bera.
Ég er búin að setja inn nokkur albúm frá þessum skemmtilega tíma, og á eftir að setja inn fleiri.

Molinn kveður.
  • 1


clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

6 mánuði

5 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

8 mánuði

7 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

2 mánuði

5 daga

Tenglar