Nú er sauðburði lokið hjá okkur. Sú síðasta bar í gærkvöld. 9. maí fæddust 2 lömb 10. maí fæddist 1 lamb 12. maí fæddust 4 lömb 13. maí fæddust 2 lömb. Alls fæddust 88 lömb og 82 lifa. Það eru 31 gimbrar og 51 hrútar á lífi. Það var önnur ær sem var með snúið upp á legið. Það voru þrír snúningar á því. Við fengum dýralækni til að gera keisara á henni. Lambið lifði það ekki af, en ærin er orðin hress. Hún fékk einn þrílembing undan Súlu, forystukindinni, að láni. Það er voðalega skrýtið að fá tvær ær með snúið upp á legið. Við höfum aldrei fengið svoleiðis fyrr. Ég veit ekki afhverju þetta skeður, en þetta er alveg hræðilegt. Ég flutti heim í gærkvöld, eftir 23 nætur í hjólhýsinu í sveitinni. Það er dálítið skrítið að vera komin heim aftur. Ég hef ekki horft á sjónvarp, eða hlustað á útvarp, allan þennan tíma, sem er alveg hreint frábært. Og svo var það fyrsta nóttin síðustu nótt, sem ég svaf í meira en 2-3 tíma í einu. Ég var líka syfjuð í dag. Búin að sofa of lengi í einu, haha. Verð smá tíma að venjast því. Við erum með allt féð inni. Við settum allt inn á laugardagskvöld. Það byrjaði að rigna mikið, og svo snjóaði á sunnudaginn. Það snjóar enn. Við getum vonandi sett út í smá tíma á morgun. Við verðum líklegast að hafa allt inni þangað til á miðvikudag. Það fer vonandi að skána þetta veður. Litla gullið mitt er 8 mánaða í dag. Hann er farinn að standa upp ef hann getur gripið í eitthvað. Svo er hann farinn að skríða. Hann var alltaf að æfa sig í garðanum, þegar hann var hér fyrir norðan. Einar Breki 8 mánaða.
Svo verð ég að fara að setja inn myndir. Geri það á næstu dögum.
Það er allt gott að frétta af okkur hér. Guðrún Helga og Einar Breki fóru á föstudaginn. Það var ending í litla stubb. Svaf 12 nætur í sveitinni, og hefði þolað lengri tíma. Hann var svo góður allan tímann. Yndislegt að geta haft þau með mér í sauðburðinum. Guðrún hafði mjög gaman af því að geta verið hjá okkur. Yndislegur tími brátt á enda. Ég sef enn í hjólhýsinu, og vakta féð á nóttunni, fer svo að vinna 8-16 og húrra mér svo aftur í sveitina eftir það. Siggi og Júlli gistu hjá mér um helgina. En núna er ég bara ein. Ég ætla að sofa í sveitinni alveg þangað til allar eru bornar. Pabbi vaktar féð fyrir okkur á daginn meðan ég er í vinnunni. Það eru bara 5 eftir núna. Það eru búin að bætast við lömb síðan ég skrifaði síðast. 2. maí fæddust 3 lömb 3. maí fæddust 3 lömb 5. maí fæddust 2 lömb 7. maí fæddust 2 lömb Nú eru fædd 79 lömb, og 74 á lífi. Það eiga eftir að fæðast 9 lömb. Við fengum 8 lömb úr sæðingunum. 4 lömb undan Snæ, 1 gimbur og 3 hrúta. Það voru 3 ær sem héldu við honum. Og 4 lömb undan Þrist, 3 gimbrar og 1 hrút. Það voru 2 ær sem héldu við honum. Nú er ég búin að setja inn nokkrar myndir, og á eftir að setja fleiri. Nú er málið að taka myndir af kindunum með lömbin, og líka myndir af lömbunum. Ég er að vinna í því, og þegar sú vinna er búin, þá koma myndir af þeim hér inn. Nú er þessi yndislegi tími að verða búinn. Það er tilhlökkun allan veturinn, og svo gengur hann yfir á nokkrum dögum og svo bara búið. En 5 pakkar óopnaðir ennþá. Kynjaskiptingin á lömbunum er ekki jöfn. Á lífi eru 27 gimbrar og 47 hrútar. Þrír hrútar og tvær gimbrar eru farnar :-(
Ég er á lífi. Ég sef enn í hjólhýsinu og er að vakta féð. Guðrún Helga og Einar Breki eru búin að vera hér hjá mér síðan á sunnudaginn, 22. apríl. Það gengur mjög vel að hafa Einar Breka hér í sveitinni, og láta hann sofa í húsbílnum, og vagninum. Hann er náttúrulega bara snillingur þessi drengur. Ekkert vesen á honum. En jæja, þá með fréttir af sauðburði. Það lét ein þarna 13. apríl, tveim lömbum, eins og ég skrifaði síðast. Og það fór eins og ég spáði, að sú fyrsta bar 23. apríl. Það er búin að vera törn hér hjá okkur. 23. apríl fæddust 2 lömb 25. apríl 10 lömb 26. apríl 14 lömb 27. apríl 13 lömb 28. apríl 10 lömb 29. apríl 13 lömb 30. apríl 3 lömb 01. maí 2 lömb Það eru fædd 69 lömb, með þessum sem Sæla lét, og 64 á lífi. Eitt kom dautt, og við misstum 2 í fæðingu. Semsagt 5 lömb farin. Það eiga eftir að fæðast 19 lömb. Já og svo var einn gemlingur með snúið upp á legið. Það var orðið svo morkið, að þegar verið var að hjálpa henni, þá rifnaði það. Það þurfti að lóga henni, en lambið var skorið úr, og var sprelllifandi. Við settum það til gemlings sem var að bera, og hún tók það strax. Þannig að það fékk fósturmóður. Þessi sem við lóguðum hét Lukka, og var með 38 í ómvöðva í haust. Sorg að missa hana. Nú Brák, sem var þrílembd, gemlingur í fyrra, kom með fjögur núna. Það voru talin 3 í henni í febrúar, en útkoman var 4 stk. 2 hrútar og 2 gimbrar. Hún er undan Kalda, og hefur greinilega erft frjósemisgenin frá honum. Við erum búin að taka eitt lamb frá henni og venja undir eina sem missti lambið sitt. Brák með lömbin 4
Nú erum við að bíða eftir að Súla beri. Hún er með þrjú lömb, og er komin 149 daga. Hún hlýtur að bera í dag. Það eru 9 eftir að bera með henni. Sú síðasta ber 13. maí. Ég fer svo smátt og smátt að setja inn myndir frá þessum dögum hér. Það er farið að róast aðeins, þannig að ég hlýt að fara að hafa tíma til að vinna í myndum. Við setjum kindurnar og lömbin út á hverjum morgni, og hýsum þau svo yfir nóttina. Þetta gengur alveg ágætlega allt saman hér. Ég á eftir að sofa þónokkrar nætur hér, í viðbót. Flyt ekki heim á næstunni. Öxlin er í alveg þokkalegu ástandi. Samt altof rólegur bati, en hann kemur vonandi. Jæja þangað til næst.
Nú er stundin runnin upp. Ég er flutt í sveitina, í hjólhýsið, og byrjuð að vakta kindurnar. Ég á nú samt ekki von á lambi fyrr en 23. En það borgar sig að byrja strax að vakta ef ske kynni að það kæmi lamb eitthvað fyrr. Siggi Tumi og Júlli verða hjá mér um helgina, og gista með mér hér. Þeim finnst þetta svo gaman, og segjast vera í útilegu. Það er að vísu rétt hjá þeim. Við erum í útilegu. Ég fór til sjúkraþjálfans á þriðjudaginn, og hann sá mikinn mun á mér, eftir þessa einu viku. Hann sagði að ég mætti fara að trappa mig niður með það að sleppa fatlanum. Ég ákvað bara að sleppa honum alveg. Fyrsta nóttin án fatlans var aðfaranótt miðvikudags. Það gekk bara vel að vera án hans, og ég hef ekki sett hann upp síðan á þriðjudag. Svo er bara að vera dugleg að gera æfingar. Þær eru nú að vísu sársaukafullar, og þó sérstaklega er vont þegar þjálfinn er að teygja á vöðvunum. Það er helv. pína.
Nú eru liðnir 7 mánuðir síðan ég fékk titilinn, besta amman í öllum heiminum. Já hann Einar Breki er orðinn 7 mánaða. Það eru bara nokkrir dagar í það að ég fái að knúsa hann. Hann ætlar að vera litli vinnumaðurinn í sauðburðinum, og kemur líklegast um, eða upp úr næstu helgi. Einar Breki 7 mánaða.
Ég er eins í öxlinni minni. Ég er bara alltaf með einari, eða sko nota bara aðra hendina. Einar já, hann er sko fínn. Það er ekki gott að frétta úr fjárhúsunum okkar. Það lét ein í gær. Það var hún Sæla, hún lét tveimur gimbrum. Önnur hvít, en hin svartflekkótt. Nú er mikil sorg hjá okkur. Ég var búin að spá því að hún bæri 21-22. apríl. Hún átti að bera fyrst, og að vísu gerði hún það, en ekki á þann hátt sem ég vildi. Hún bar fyrst í fyrra, þá gemlingur, og var tvílembd. Hún skilaði 44 og 47 kg lömbum af fjalli. Hún hefði skilað góðu aftur. En svona er þetta bara. Ekki gaman að byrja sauðburð svona. Við Þórður fórum í sauðfjárræktarskólann, síðasta miðvikudag. Tíminn byrjaði kl. 20 og var búinn hálf eitt um nóttina. Hákon Hansson
dýralæknir á Breiðdalsvík, kom og fór yfir stóran hluta efnissins, sem var í þessum 5. tíma.
a) Sauðburður,
fæðingarhjálp, sjúkdómavarnir, undirvenjur
b) Helstu
sjúkdómar á sauðburði og meðhöndlun þeirra.
c) Fjárvís.is, burðarskráning
og aðrar vorskráningar.
Svo er bara einn tími eftir, og hann verður í ágúst. Ca. 11 dagar í sauðburð. Ég ætla að byrja að vakta næsta föstudag. Þá flyt ég í hjólhýsið í sveitinni. Vá hvað ég hlakka til. Ég vona að það gangi vel, og það verði ekki fleiri sem láta. Heldur bara beri fallegum lömbum Við Þórður vorum í sveitinni í allan dag, og vorum að undirbúa sauðburðinn. Þórður smíðaði 5 einstaklingsstíur. Þær eru mjög flottar. Þórður er engum líkur. Hann getur allt sem honum dettur í hug að gera, og er mjög svo handlaginn. Við borðuðum siginn fisk og selspik. Það voru líka fleiri sem komu og borðuðu með okkur. Ég setti inn nokkrar myndir frá deginum, og það læddust líka nokkrar myndir af Einari Breka.
Nú á miðvikudaginn, eða á morgun, eru liðnar þrjár vikur frá aðgerðardeginum. Ég er nokkuð góð, þannig lagað, er enn í fatlanum. Ég þarf að vera í honum allan sólahringinn ennþá, og eina til tvær vikur í viðbót. Ég sef í sitjandi stöðu og verð að gera það meðan ég er í fatlanum. Ég fór í fyrsta tímann til sjúkraþjálfans í dag. Það var frekar mikil píning á mér. Hann er nú bara að liðka hendina, svo hún festist ekki alveg. Ég má gera smá æfingar. Passa bara að það takist ekki í það sem saumað var og neglt. Það gengur vel í vinnunni. Er smásaman að komast inn í þetta. Vá hvað það er rólegra á mér þarna. Nú eru páskarnir liðnir, og ég fékk alveg 5 daga frí. Hef ekki fengið alla þessa frídaga, um páskana, síðan ég var dagmamma. Semsagt ekki í MS. Sigurjón kom með strákana, Dag og Jökul, norður um páskana. Þeir gistu hjá Fanneyju. Þeir komu nú og heimsóttu afa og ömmu, bæði heim og í sveitina. Ég flippaði aðeins með myndavélina um páskana. Var að nota stóru linsuna mína. Ég á nú eftir að nota hana mikið á næstunni, þegar fuglarnir fara að láta sjá sig. Já og lömbin. Það verður gaman að taka myndir af lömbunum þegar þau fara út. Siggi Tumi kom á miðvikudaginn, og fór á föstudaginn. Og Júlli kom á föstudaginn og fór á sunnudaginn. Þeir voru ekki saman hjá okkur núna. Næst þegar þeir koma, þá verð ég flutt í hjólhýsið mitt í sveitina, og þeir gista hjá mér þar. Ég byrja að vakta féð þá helgi. Vá hvað ég hlakka til. Næsta laugardag 14. verður ömmugullið mitt 7 mánaða. Vá hvað tíminn æðir áfram. Þau Guðrún og Einar Breki koma svo aðra helgi, í sauðburð. Það verður gaman að sjá hvort Einar Breki fílar sauðburðinn.
Í gær, fórum við með félagsmönnum Neista, í menningar og fræðsluferð í Reykjahverfi og Öxarfjörð. Við vorum 15 sem fórum í þessa ferð. Það var alveg hreint mjög gaman að fara þetta. Við byrjuðum á að fara í Skarðaborg í Reykjahverfi. Þar tóku á móti okkur Þórarinn Jónsson, Sigurður Þórarinsson og Helga Helgadóttir. Við skoðuðum kjötvinnsluaðstöðuna, og fé í tveimur fjárhúsum. Við komum svo við í sjoppu á Húsavík, á leið okkar að Þverá í Öxarfirði. Á Þverá tóku á móti okkur, Benedikt Kristjánsson, Erla Ingólfsdóttir og Árni Kristjánsson. Við skoðuðum féð þar. Síðan fórum við að Ærlæk í sömu sveit. Þar tóku á móti okkur Jón Guðmundsson og Guðný Sigurðardóttir. Við skoðuðum fé í tveimur fjárhúsum þar. Svo fórum við að Bjarnastöðum í sömu sveit. Á móti okkur tóku Halldór Olgeirsson og Elín Maríusdóttir. Þar voru líka tvö fjárhús sem við komum í og skoðuðum féð. Við fengum alveg hreint mjög góðar móttökur á öllum þessum bæjum, bæði með góðum veitingum og miklum fróðleik. Það sést vel á myndunum sem ég er búin að setja hér inn. Ég setti inn, 7 albúm úr þessari ferð. Þau raðast ekki í réttri röð, og ég kann ekki að laga það. Ég númeraði þau 1-7 Við enduðum svo ferðina með því að fá okkur að borða á Sölku á Húsavík. Þvílíka flotta ferðin. Takk fyrir allir sem tóku þátt í henni. Við sprautuðum kindurnar, í dag, seinni sprautuna gegn lambablóðsótt og líka með seleni. Það eru bara 24 dagar eftir í sauðburð :-)
Enn fer heilsufarið batnandi. Ég er ágætlega hress. Ég fór suður, í skoðun, á miðvikudaginn. Ég er að gera allt rétt. Fékk mjög góða skoðun. Byrja í sjúkraþjálfun strax eftir páska, eða 10. apríl. Ég er orðin mjög sjálfbjarga. Get klætt mig sjálf í föt, sett fatlann á mig, og bara held ég allt sem ég þarf að gera, get ég. Það er samt skrítið að geta ekki gert alla þessa venjulegu hluti, sem manni finnst svo sjálfsagt að geta. Ég er búin að vera að vinna alla vikuna mínus miðvikudaginn. Það gengur bara vel. Er smá saman að komast inn í þetta. Guðrún og Einar Breki fóru suður með mér. Það verður alltaf svo tómlegt hér þegar þau fara. En það styttist nú í að þau komi aftur, því sauðburður byrjar eftir 26 daga. Ég veit ekki hvað ég get gert mikið þá, en sjúkraþjálfinn segir mér hvað ég má gera. Við Þórður erum að fara á morgun í dagsferð með félagsmönnum Neista. Við förum í Reykjahverfi og Öxarfjörð og fl. Þetta verður áreiðanlega skemmtileg ferð. Við fórum líka á aðalfund Neista sem var á mánudaginn. Það mættu margir félagsmenn. Mjög góður fundur. Ég þarf svo að fara að setja inn myndir. Geri það kanski um helgina.
Þá er nú kominn laugardagur, og þrír dagar frá aðgerðinni. Heilsufarið er bara mjög gott hjá mér. Ég fór í vinnuna á fimmtudagsmorgunn, en gafst upp um kl. 11, því það komu svo miklir verkir, sem ég losnaði ekki við fyrr en ég fór að sofa um kvöldið. Dagurinn í gær var miklu betri. Ég fór í vinnuna kl. 13, og var til kl. 16. Það gekk bara mjög vel. Nú er ég nánast verkjalaus og hef ekki tekið verkjalyf í morgun. Ég ætla að sjá til hvort ég þarf þess nokkuð. Það gekk vel að sofa í stólnum. Svo vel, að ég er búin að sofa allar þrjár næturnar í honum. Svo er stefnan tekin í sveitina í dag. Mikið hlakka ég til að komast þangað. Guðrún Helga og Einar Breki eru hér. Þau komu á fimmtudagsmorgunn. Þau ætla að vera hér þangað til á miðvikudag, en þá fer ég suður líka. Ég þarf að fara í eftirlit, eða eftirskoðun. Athuga á hvort þetta sé á réttri leið að gróa. Ég segi nú bara VÁ, ef þetta er fyrsti verkjalausi dagurinn síðan 2. janúar. Það er náttúrulega bara TÆR SNILLD. Bjartsýni og yndislegir dagar frammundan.
Jæja, þá er þetta nú allt búið. Ég fór í aðgerðina í morgun. Ég sofnaði kl. 7:45, og vaknaði úr aðgerðinni kl. 10. Aðgerðin tók eitthvað um einn og hálfan, til tvo tíma. Það var hægt að gera við allt, þannig að ég þarf ekki að fara aftur í aðgerð, nema ef það þarf að taka skrúfurnar úr sem settar voru í til að halda vöðvanum á sínum stað á meðan hann grær. Það semsagt gekk vel að sauma vöðvana saman. Ég gleymdi að spyrja hvað ég væri með stóran skurð, en það var ekki hægt að gera þetta í gegnum göt, því þetta var svo mikil aðgerð. Guðrún Helga og Einar Breki komu og sóttu mig kl.12. Ég var svo heima hjá þeim þangað til ég fór í flug heim. Ég var komin heim kl.18:30. Heilsan er bara ágæt. Ég fæ mér verkjalyf og verð að taka þau reglulega. Svo þarf ég að sofa sitjandi í stól, í nótt. Gaman að sjá hvernig það gengur. En jæja ætli það sé ekki best að fara að sofa.
Nú er ég komin í ársleyfi hjá MS Akureyri. Síðasti dagurinn þar, var á fimmtudaginn. Ég er byrjuð í nýju vinnunni. Ég byrjaði þar á föstudaginn. Ég held að hún lofi góðu. Það er allavegana búið að ganga vel, og vera gaman þessa tvo daga sem ég er búin að vinna. Þetta er frekar rólegra starf, en hitt sem ég var í. Ég ætla svo bara að vinna fram að hádegi á morgun, því ég er að fara suður í aðgerð. Ég á að mæta í aðgerðina kl. 7:40 á miðvikudagsmorgunn í Orkuhúsið. Ég fer svo heim aftur aðgerðardaginn, og fer vonandi að vinna á fimmtudaginn. En það verður að vísu að fara eftir því hvernig ég verð. Ég ætla að vona að það verði gert við allt í þessari aðgerð og ég þurfi ekki að koma aftur, en doksi sagði að hann vildi ekki leggja á mig allt það sem þyrfti að gera í einni aðgerð. Krossa bara putta og vona að þetta takist allt, og það í einni aðgerð. Ég skrifa svo um það, á miðvikudaginn, hvernig gekk hjá mér :-) Já og svo þarf ég að sofa í stól fyrstu nóttina. Ekki veit ég hvernig það gengur hahaha.