Við ákváðum að halda upp á sauðburðarlok og keyptum
okkur hamborgara
Sauðburður gekk vel. Nú get ég sofið heila nótt án þess að
vakna á eins til tveggja tíma fresti. Ég er búin að vera á
vaktinni síðan 20. apríl og aldrei sofið nema einn til tvo tíma
í einu og aldrei lagt mig á daginn. Þetta get ég aldrei nema á
sauðburði. Nú get ég farið í liðskipti á hné. Ég hef afþakkað
tvisvar, vegna þess að sauðburður var í gangi. Ég átti að fara
28. apríl sem ég taldi að væri ekki gáfulegt fyrir mig og svo
mátti ég fara 20. maí og það var heldur ekki að ganga upp
fyrir mig. Ég á tíma núna 11. júní og ég fer þá. Hef ekki neina
afsökun lengur. Ég tek það fram, að ég var sko ekki ein í
sauðburðinum. Þórður var með mér í þessu öllu og var líka
á "vakt á nóttunni", þá heima með drengina okkar fjóra sem
við erum með. Hann er kletturinn minn í öllu 
190 lömb á lífi, 99 hrútar og 90 gimbrar og svo er eitt viðrini.
Við tókum sýni úr öllum lömbunum, nema þessu viðrini.
Við ætlum að setja sýnin í póst á morgun. Það verður
spennandi þegar greiningarnar koma
 |
Þessi er með hreiður í fjárhúsunum
 |
Og hefur varla undan að færa ungunum mat. Þeir eru tveir
í fullri vinnu við það allan daginn
 |
Þarna er hreiðrið
 |
Maríuerlan er líka með hreiður í fjárhúsunum. Ég hef bara
ekki séð hvar það er
Molinn kveður
|
|
|
|
|