Við fórum Dalsmynni og að Illugastöðum. Við ætluðum þar
í sund, en það var ekki búið að opna. Við borðuðum
hádegismat þar og héldum svo í Daladýrð. Við ákváðum
svo að keyra í Stórutjarnir og ætluðum þar í sund. Það var
hinsvegar ekki opið þar. Ég var samt búin að gá á google
og þar var sagt að það væri opið. Við fengum okkur að
drekka á Stórutjörnum og keyrðum svo heim
 |
Græni punkturinn er Möðruvellir, séð frá Víkurskarðinu
 |
 |
Hér sést hvert við keyrðum
 |
Þetta er Hlökk. Hún var sónuð geld. Við settum geldu ærnar
hjá hrút, en hún gekk aldrei hjá honum. Ástæðan er líklegast
sú, að hún hefur ekki verið geld, heldur með lambi. Hún ber
þá núna í júní
Molinn kveður
|
|
|
|
|