|
Æi elsku dúllan. Ég er búin að gefa henni mjólk í slöngu, því
hún hefur ekki getað sogið. Svo í dag, þegar hún fór að labba,
þá byrjaði hún að sjúga pela og reyna að sjúga mömmu sína.
Þá var nú mamma hennar ekki glöð og stangaði hana bara.
Skrýtið þar sem Lilla litla er búin að vera allan tímann hjá
henni. Það er svona með sumar ær, að þegar lömbin eru
ekki að sjúga strax, þá vilja þær ekki lömbin sín. Hún er
með tvö lömb og við venjum Lillu litlu undir eina einlembu
sem á tal í dag og ber þá á næstunni. En gaman að hún
Lilla litla ætlar ekki að gefast upp. Hún fæddist 7.maí
Molinn kveður
|