Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 233
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 631
Gestir í gær: 39
Samtals flettingar: 3579418
Samtals gestir: 96587
Tölur uppfærðar: 11.7.2026 02:35:02

10.07.2026 19:20

Sauðburður og fyrri heyskapur að klárast

Jæja hún 23-046 Glöð bar í dag tveimur hrútum. Þeir eru 

undan 24-733 Púka. Hún sónaðist geld í febrúar. Við settum

hana hjá Púka daginn eftir fósturtalninguna og hún gekk

daginn eftir og útkoman eru þessir flottu hrútar

 

 

Bæði Glöð og Púki eru með arfgerðina T137, þannig að þeir

gætu báðir verið arfhreinir T137. Við tökum sýni úr þeim á 

morgun og sendum þau frá okkur á mánudaginn. 

Það er alveg furðulegt með þessa greiningu hjá Matís. Við

sendum frá okkur öll sýnin um miðjan maí og þau eru ekki

öll komin ennþá. Þeir eru að senda okkur nokkur í einu. Við

fengum tvö greind síðasta mánudag og annað kom vel út.

Það var gimbur sem var arfhrein T137. Alveg furðulegt hvað

þetta tekur langan tíma, fer að verða komnir tveir mánuðir

síðan öll okkar sýni voru send

Þórður snéri tvisvar á enginu í dag. Svo garðaði hann allt

upp og Guðmundur á Þúfnavöllum kom og rúllaði

Það voru 72 rúllur af þessu stykki 6

Við drifum okkur niðureftir til að ganga frá endum og merkja

rúllurnar

Númer 6

Við kláruðum að ganga frá endum og merkja 72 rúllur. Svo

flottir vinnumenn sem við erum með

Það var frekar stutt í rigninguna. Við sluppum samt alveg

Auðvitað fór Þórður í að keyra heim rúllum. Hann fór eina

ferð í dag/kvöld

18 rúllur í ferðinni. Þrjár ferðir eftir sem ég veit að hann

tekur á morgun og klárar ef ég þekki hann rétt heart

Jæja nú eru komnir 3 ungar hjá Skógarþrestinum sem

verpti inn í hlöðu. Tvö egg eiga eftir að klekjast út

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

14 ár

9 mánuði

27 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

11 ár

11 mánuði

30 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

4 ár

5 mánuði

28 daga

Tenglar

Eldra efni