Simmi fór inn á Myrkárdal í gær, og í dag, á snjósleða. Hann fann kindurnar sem okkur vantaði. Hann náði þrem í gær og þrem í dag. Ein úr hópnum (sú sjöunda) stakk af og er nú ein einhverstaðar á fjalli. Það er forystuá. Til viðbótar kom hann með hrútlamb frá Þúfnavöllum
18-411 Túbba kom með tvo hrúta
Hrútur undan Túbbu og 16-108 Bláma
Hrútur undan Túbbu og Bláma
19-489 Blanda. Þetta er sumrungur frá því í fyrra. Hún átti nú að fara á bílinn í haust, en fær að vera annan vetur, vegna seinkunnar á heimkomu. Hún er undan þessari sem stakk af í gær 18-406 Prinsessu
Þessir forystuhrútar eru undan Prinsessu og 19-601 Safír
Möðruvallakirkja í morgun
Möðruvellir 3
Flottur himinn í morgun
Molinn kveður