Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 1662
Gestir í dag: 120
Flettingar í gær: 3139
Gestir í gær: 439
Samtals flettingar: 950303
Samtals gestir: 51284
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 13:34:34

Færslur: 2021 Nóvember

15.11.2021 20:27

Slenja


12-087 Slenja er fjórlembingur undan 10-032 Brák og 09-314 Spaða
Hún er búin að eiga 27 lömb á 9 árum
2013 (gemlingur) var hún tvílembd
2014 var hún þrílembd
2015 var hún þrílembd
2016 var hún þrílembd
2017 var hún fjórlembd
2018 var hún þrílembd
2019 var hún þrílembd
2020 var hún þrílembd
2021 var hún þrílembd
Frjósöm ær sem fór í húsið í haust


Möðruvallakirkja í morgun


Að bíða eftir rútunni. Nú verða þeir að standa, því sætin eru orðin að vatni (bráðnuð)


Strákarnir fengu leir í dag og voru mjög glaðir með það

Flottur leir, sem á trúlega eftir að blandast saman í einn lit





Molinn kveður


14.11.2021 19:44

Kiða, flott ær


14-143 Kiða er fjórlembingur undan 09-020 Drífu og 12-579 Blossa
Hún er búin að eiga 22 lömb á 7 árum
2015 (gemlingur) var hún einlembd
2016 var hún fjórlembd
2017 var hún þrílembd
2018 var hún þrílembd
2019 var hún þrílembd
2020 var hún fjórlembd
2021 var hún fjórlembd
Svakalega frjósöm þessi, þótt hún sé ekki með þokugen

Kinga, sem ég setti inn í bloggi 12. nóvember, er systurdóttir Kiðu


Þetta er mamma Kiðu, hún Drífa. Hún átti 24 lömb á 9 árum


Við vigtuðum og merktum ullarpokana og gengum frá þeim í geymslu. Við fengum góða hjálp við það frá þessum


Snjórinn farinn, sem kom um daginn. Ég hefði viljað hafa hann fyrir strákana. Þeim finnst svo gaman að leika sér í honum





Molinn kveður


13.11.2021 20:18

Gullmolarnir mínir


Það sem ég elska þessa gullmola. Ég eyddi megnið af deginum hjá þeim. Ég ákvað að splæsa í mynd af okkur. Við höfum ekki hist í langan tíma, því við höfum ekki mikið verið að fara vegna veirunnar miklu. Von er á þriðja gullmolanum í þessari fjölskyldu á nýju ári emoticon emoticon emoticon Hlakka mikið til emoticon emoticon emoticon

Svo yndislegir emoticon





Molinn kveður


12.11.2021 19:09

Flott ær


18-434 Kinga. Hún er undan 14-144 Kistu og 17-586 Nóa
Hún er búin að eiga 9 lömb á þessum þrem árum
2019 (gemlingur) var hún tvílembd, en gekk bara með annað lambið. Hitt var vanið undir 14-155 Rifu
2020 var hún þrílembd og gekk með tvö. Eitt var vanið undir 16-304 Oddný
2021 var hún fjórlembd og gekk með þrjú. Eitt var vanið undir 16-260 Gálu
Hún er búin að skila 142,6 kg af kjöti (8 lömb) og öll fóru þau í U
+ einn hrút sem var settur á núna í haust

21-704 Tandri undan 18-434 Klingu og 18-591 Vita


Möðruvallakirkja í morgun





Molinn kveður


11.11.2021 17:08

Útivera


Bíða eftir skólarútunni


Við fórum út að renna. Það þarf ekki af fara langt til að njóta útiveru

Ekki löng brekka



Auðvitað fengum við okkur kakó og piparkökur



Já kakó og piparkökur







Við fórum svo og tókum fjórhjólið, bundum sleðana aftan í það og létum vaða. Gaman hjá þeim á sleðum aftan í hjólinu, hring eftir hring


Eftir útiveru, þá var leikur hjá þeim. Annar í kubbum

Og hinn með fjarstýrðan monster truck





Molinn kveður


10.11.2021 20:42

Eins og tveggja mánaða


Þær Sólveig og Sara eru eins mánaðar í dag. Þær eru vel sprækar og dafna vel


Og Dalur er tveggja mánaða í dag. Hann hefur það gott


Morgungjöf





Molinn kveður


09.11.2021 21:01

Geitungabú


Það var geitungabú í moðkarinu, sem er búið að vera úti í sumar. Það var tómt, allir farnir



Nú eru strákarnir komnir með sæti þegar þeir bíða eftir skólarútunni. Það er ruðningur eftir moksturstæki

Að bíða eftir rútunni


Litlu lömbin og mæðurnar eru ekki lengur í hlöðunni. Það er hlýrra fyrir þær í fjárhúsunum





Molinn kveður


08.11.2021 16:40

Gott veður


Möðruvallakirkja í morgun

Það snjóaði örlítið í nótt og nú er allt hvítt


Morgungjöf


Við tókum girðinguna, neðan við íbúðarhúsin

Nú þarf maður ekki að vanda sig að bakka af stæðinu emoticon
Það fór samt smá hrollur um mig þegar við vorum að taka girðinguna niður, því þegar við vorum að setja hana upp, þá meiddi ég mig á puttanum

Það er með ólíkindum hvað hann er orðinn góður á tveim mánuðum. Nöglin farin en það er að koma flott nögl í staðinn. Lítur bara vel út

Ég tók aðeins á loft í dag. Veðrið var svo fallegt. Nú eru kindurnar allar komnar á hús, þannig að ég þarf ekki að fljúga yfir þeim á hverjum degi. Nú flýg ég bara þegar mig langar til





















Molinn kveður


07.11.2021 17:24

Smá snjóföl


Þeir fóstbræður bjuggu til þessi listaverk á meðan við gáfum morgungjöfina í fjárhúsunum



Það er komin snjóföl, en frekar lítil


Við fórum og heimsóttum litla gullið okkar



Við skruppum aðeins í göngin í dag. Þeir urðu að athuga hvort það væri kominn snjór inn í þau

Göngin alltaf vinsæl





Molinn kveður


06.11.2021 21:43

Ærnar klipptar


Unnar kom og klippti allar hvítu ærnar og líka nokkrar mislitar. Það eru innan við 60 ær eftir og þær eru allar flekkóttar

Nú er fjárhúslífið fullkomið


Mislitu ærnar





Molinn kveður


05.11.2021 19:19

Ærnar teknar á hús


Skítmoksturinn kláraðist í gær. Í dag settum við gólfið niður í nyrsta húsinu. Milliskilrúmið var sett upp og ærnar settar inn. Á morgun á að klippa hvítu ærnar



Við erum búin að flokka ærnar, hvítar frá mislitu

Allt klárt fyrir morgundaginn


Í morgun

Möðruvallakirkja í morgun





Molinn kveður


04.11.2021 20:27

Síðasta húsið í skítmokstri


Síðasta húsið í skítmokstri. Við erum heppin með veðrið á meðan verið var að moka út. Gott að þetta er að taka enda

Kindurnar verða settar inn á morgun


Sólveig og Sara eru að verða eins mánaðar gamlar

Sara

Sólveig

Þær eru sprækar og fallegar





Molinn kveður


03.11.2021 19:21

Enn að brasa í fjárhúsunum


Klárað að setja gólfið niður í dag, en skilrúmið verður sett upp á morgun

Tunglið var frekar lítið í morgun






Þrílembingar undan 11-041 Perlu og 16-576 Liða

17-346 Pota

17-347 Pytla

17-348 Pylsa





Molinn kveður


02.11.2021 20:18

Skítmokstur


Við settum kindurnar út og rifum upp grindurnar í mið húsinu. Klárað var að moka út og svo verður gólfið sett niður á morgun. Kindurnar verða úti í nótt

Myndataka í dag

19-451 Kubba

17-349 Daría





Molinn kveður


01.11.2021 20:21

Kindur


Möðruvallakirkja í morgun

Smá föl í morgun


Við settum ekki út í dag





Sara litla

Nokkrar í myndatöku í dag

17-357 Dimitría


Systurnar 19-455 Hýra

Og 19-456 Höfn





Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

25 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

28 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

26 daga

Tenglar