Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 524
Gestir í dag: 48
Flettingar í gær: 3139
Gestir í gær: 439
Samtals flettingar: 949165
Samtals gestir: 51212
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 03:30:31

Færslur: 2022 Mars

16.03.2022 18:58

Skíðaskólinn, dagur eitt

Skíðaskóli hjá 1. - 4. bekk í Þelamerkurskóla, í Hlíðarfjalli.

Í gær átti að vera skíðaskóli, dagur eitt, en fjallið var lokað.

Dagur eitt var í dag. 

Alexander í græna hópnum

Góður dagur í fjallinu

 

Þetta er sjöunda árið sem ég tek þátt í skíðaskólanum. 

Þelamerkurskóli býður krökkunum í 1. - 4. bekk skíðakennslu

í fjóra daga. Í framhaldi af þeim dögum, þá er útivistardagur

og þá fara allir nemendur og starfsmenn skólans í fjallið. 

Algjör snilld hjá flottum skóla smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.03.2022 18:50

28. apríl

Sauðburður byrjar 28. apríl

Það eru 18 ær sem eiga tal þann dag:

5 þrílembur

11 tvílembur og 

2 einlembur

 

Svo 29. apríl eiga 9 ær tal:

1 fjórlemba

3 þrílembur 

3 tvílembur  (þar af einn gemlingur)  

2 einlembur

 

Og 30. apríl eiga 14 ær tal:

1 fjórlemba

3 þrílembur

8 tvílembur  (þar af einn gemlingur)

2 einlembur

 

Það eru þá 41 ær sem eiga tal fyrstu þrjá dagana og 

koma með 91 lömb

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

14.03.2022 20:09

Tveggja mánaða gullmoli

Þessi fallegi gullmoli er tveggja mánaða 

í dag. Það sem tíminn er fljótur að líða

Fallega, fallega ömmu og afa gull

Hún er brosmild og falleg

 

Fallegt í morgun

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.03.2022 18:18

Vor í lofti

Sólin er farin að hita vel upp. Þó það sé bara um eitt stig í 

hita, þá er mikil sólbráð

Það er ekkert svo mikill snjór hér. Ég held bara að vorið sé 

komið, já eða er að koma smiley

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.03.2022 19:22

Grillið tekið út

Nú er grillið komið út og þá er það auðvitað notað

Hamborgari með beikoni

Að elda úti og losna við allt sull inni, er snilld smiley

Alveg geggjaður matur

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

11.03.2022 17:33

Þær eru mættar

Þessar mættu í dag

Nú er stutt í vorið

 

 

Já það var vorfílingur í okkur í dag

Hitinn fór í tveggjastafatölu smiley Rétt yfir 10 stig 

Snjórinn fyrir ofan íbúðarhúsið er að bráðna og þá kemur 

flóð milli bílskúrs og íbúðarhúss

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.03.2022 19:05

Að flokka kindur

Við kláruðum að flokka þrí-og fjórlemburnar 

í morgun. Nú eru þær allar í þessari kró, 

nema ein fjórlemba sem við erum með hjá

gemlingunum. Hún hefur það gott þar

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

 

09.03.2022 17:25

Aðalfundur BSE

Við fórum á aðalfund BSE, sem haldinn var í Hlíðarbæ í dag.

Þar voru veitt verðlaun

Hákon á Svertingsstöðum tók á móti 

nautgriparæktarverðlaunum BSE fyrir árið 2021

Við Þórður tókum á móti sauðfjárræktarverðlaunum BSE 

fyrir árið 2021

Við Þórður, Simmi og Helga með verðlaunin

Svakalega flott

Karolína í Hvammshlíð er hér á Zoom. Hún fékk

hvatningarverðlaun BSE fyrir árið 2021

 

Við erum komin með græjur fyrir arfgerðarsýnatökur. Nú er 

að velja kindur í þetta verkefni

 

Við hjuggum síðasta klakann af bílastæðinu

Nú er það orðið klakalaust. Ég var með tvo vinnumenn sem

hjálpuðu mér

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.03.2022 18:52

Flokkun á þrílembum

Við byrjuðum daginn á að fara með Damian til tannlæknis. 

Hann þarf að fá spangir. Það ferli byrjar í haust

 

Við erum byrjuð að flokka þrí- og fjórlemburnar og ætlum

að hafa þær saman í einni kró

Þær verða hér í þessari kró

 

Við fórum út að leika, á meðan Damian fór í skákina. Auðvitað 

fór Týri með okkur

Alexander að prufa að renna sér á járnfati sem Þórður og 

bræður hans, notuðu þegar þeir voru litlir

Á gamla járnfatinu

Hann komst í safn af gömlum beinum

Og kolféll fyrir þeim

Beinahrúgan

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

07.03.2022 19:15

Úti að leika

Í morgun

Morgungjöf

Damian með málmleitartæki, sem hann fékk um daginn. 

Honum finnst gaman að leika sér með það

Leika sér á svellinu

Veðrið var æðislegt í dag

Við fórum út að leika og auðvitað var Týri með okkur

Týri fyrirsæta

Það er svo mikið hjarn, að maður labbar á snjónum án þess

að sökkva

Við fórum upp í fjallshólf að renna

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.03.2022 19:03

Gott veður

Morgungjöf í morgun

 

Við mokuðum snjóinn af pallinum. Nú þarf að ná í grillið og 

fara að grilla. Við grillum í vikunni

Flottir og duglegir vinnumenn

Svo þarf aðeins að leika sér

 

 

 

 

 

 
 

 

Molinn kveður

 

05.03.2022 18:24

Stuð í dag

Góðir vinir

Í fjárhúsunum í morgun

 

Planið var allt í svelli og við ákváðum að höggva klakann.

Áður en ég tók þessa mynd, vorum við byrjuð að höggva 

Við náðum nánast að höggva allann klakann. Bara smá eftir

 

Við fórum út að leika og renna á sleða

Snjórinn er harður og þá er hægt að renna smá

 

Við notuðum hjólið til að draga sleðana uppeftir (hjóla-lyfta)

Og svo að renna sér niður

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.03.2022 18:50

Úti að leika

Að lokinni morgungjöf

 

Við ákváðum að fara ekki í fjallið í dag þótt við finnum ekkert 

fyrir covid veikindum. Já við finnum ekkert fyrir neinu. Ég held 

að við höfum fengið covid fyrir nokkru og það sé eitthvað 

gamalt sem kom í testinu í gær. Það kemur í ljós á næstu dögum

Við fórum þess í stað upp í fjallshólf til að renna. Fengum

útiveru í góðu veðri 

 

 

 

Gott veður

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

03.03.2022 19:06

Hlíðarfjall

Ég fór með þessa gullmola í fjallið í dag. Við byrjuðum á því 

að fá okkur ostagott og brauðstangir frá Dominos. Veðrið

var æðislegt. Ég er mjög hissa á einu. Þegar vetrarfríið í 

Reykjavík var, þá var allt stappað í fjallinu. Þegar vetrarfríið 

hér fyrir norðan er, þá eru nánast enginn í fjallinu.

Engar biðraðir sem var gott smiley

Þarna eru þeir að næra sig. Og þarna sést hvað það eru 

fáir í fjallinu

 

 

 

Flottir strákar

 

Við klipptum klaufirnar á gimbrunum. Við tökum smálömbin 

og restina á morgun

 

Ég hljóp ekki nógu hratt crying Covid náði mér, já

og líka Alexander. Þórður og Damian eru enn

að hlaupa svo covid nái þeim ekki. Við erum 

ekki veik. Við vorum á skíðum í dag. Þegar ég

var að skila ömmustrákunum mínum heim, 

þá ákvað Guðrún að taka mig í test og þetta 

er útkoman. Ég ætla svo að vona að ég hafi 

ekki náð að smita elsku fólkið mitt á Hrafnagili

 

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.03.2022 19:01

Vírinn tekinn úr hornunum

Við klipptum klaufirnar á lambhrútunum. Það var mun 

auðveldara en á fullorðnu hrútunum

 

Við tókum vírinn úr Tandra og Jalla, sem við settum í 3. janúar. 

Vonandi er þetta nóg, þannig að hornin fari ekki í þá

 

Strákarnir fóru í bæinn og fengu að versla

sér nammi í staðinn fyrir að fara að syngja

og fá nammi. Þeir gerðu þetta svona í fyrra

og hittifyrra og voru mjög ánægðir. Þeir fengu

að velja hvort þeir færu að syngja eða fara og

versla. Verslunarferðin varð fyrir valinu. Báðir

mjög sáttir með þennan dag og það er fyrir 

öllu smiley

 

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

25 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

28 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

26 daga

Tenglar