Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 734
Gestir í dag: 61
Flettingar í gær: 3139
Gestir í gær: 439
Samtals flettingar: 949375
Samtals gestir: 51225
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 05:53:25

Færslur: 2022 Maí

16.05.2022 18:17

Kindur og lömb

Hrútur og gimbur undan 19-460 Larisu og 20-607 Dúa

16-270 Sif með tvo hrúta og gimbur undan 21-703 Jalla

Demelsa og Gorma litla

21-003 Vera með hrút og gimbur undan 21-706 Hnikari

Hrútur og gimbur undan Veru

20-506 Marey með gimbrar undan 21-704 Tandra

17-364 Þóra að fela sig

Þórður tók strákana með sér í girðingarvinnu

 

Þeir fóru efst í fjallshólfið og löguðu þar sem þurfti

Maríuerlan er með hreiður í hlöðunni. Fallegur fugl

 

Veðrið var svakalega gott í dag

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.05.2022 16:31

Gott veður í dag

Verið að hjálpa afa að marka

Tvær gimbrar og hrútur undan 16-286 Drílu og 21-705 Kalda

19-464 Bosnía með hrúta undan 20-603 Sagosen

Hrútar undan 18-408 Elínu og 20-603 Sagosen

Litla Gorma er svo ánægð með mömmu sína. Hún hoppar 

og skoppar um allt

Gimbrar undan 18-426 Maríku og 19-597 Ótta

 

 

 

 

 

Molinn kveður  

 

 

14.05.2022 17:44

Lambærnar settar út

Það voru margar settar út í gær, og svo aftur inn. Ég tók

þessar í nótt. Það fór vel um þær. Allt í rólegheitunum

 

Þær eru í afslöppun

Betri nótt í nótt, en fyrri nætur. Allavega ekki snjókoma

Þau fundu hvort annað

Við settum allt út, nema nokkrar lambær og þessar óbornu. 

Þær verða ekki settar inn. Við settum upp girðinguna fyrir 

neðan íbúðarhúsin. Nú komast þær um allt

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

13.05.2022 17:42

Enn er kalt

Kl. 5 í nótt

Margar lambær fengu að fara út í morgun. Þær voru svo

settar aftur inn seinni partinn í dag

Það er fjör á Möðruvöllum um helgina smiley smiley

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.05.2022 16:40

Rétt um 30 ær eftir

Þetta ætlar engan endi að taka. Það má nú fara að hlýna

Þær hafa það nú samt gott inni. Það fer vel um þær

 

Á meðan mæðurnar éta, leika lömbin sér

Um 60 lambær voru settar út í morgun og aftur inn seinni

partinn. Þær hafa gott af því og ekki síður lömbin

17-320 Pía með hrút og gimbur undan 21-705 Kalda

20-524 Þvæla með hrút og gimbur undan 21-706 Hnikari

 

Það eru rétt um 30 ær eftir að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.05.2022 17:14

Vetrar veður

Já svona var þetta kl. hálf fjögur í nótt

Ekki er það glæsilegt

En féð hefur það gott í refaskálanum. Lömbin dafna vel

Við erum með eitthvað á milli 50 og 60 lambær í

refaskálanum. Það eru 27 lambær við gömlu fjárhúsin. Þær 

hafa val um að komast inn í húsin. Við settum 48 lambær 

út í dag, en þær voru settar aftur inn seinni partinn í dag.

Það verður æðislegt þegar hægt er að setja allt út. Vonandi 

fer að hlýna smiley

 

Núna eru rétt um 40 ær eftir að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.05.2022 18:57

Gorma litla eignast mömmu

21-005 Demelsa bar í nótt. Hún átti tvo hrúta. Ég ákvað að 

venja litlu Gormu undir hana og hafa hana þrílembda þangað 

til að næsta ær bæri og geta þá komið öðru lambinu hennar 

undir hana. Það var því miður ekki raunin. Þegar ég kom fram

í nótt, var það orðið veikt. Garnirnar höfðu farið út um gat á 

kviðnum. Líklegast hefur hún bitið í naflastrenginn og gert 

gatið. Það varð að aflífa það. Það er lambið lengst til hægri. 

Það var komið á spena og var vel sprækt. Sárt að missa  

Gorma litla tók þessari mömmu vel. Hún fór strax á spena

þó hún hafi aldrei sogið spena áður, bara pela. Hún vissi líka

alveg hvar spenarnir væru. Hún stóð sig vel

Nú á hún systkin. Hún er 10 daga gömul

 

Gott að kúra á mömmu sinni

Þegar búið er að hlaupa í garðanum er gott að fá sér lúr

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.05.2022 14:24

Sauðburður kominn á seinni hlutann

Klukkan fjögur í nótt

Systkinalúr

Það eru nokkrar ær komnar út og verða í fjárhúshólfinu við 

gömlu fjárhúsin. Þær geta komist inn ef þær vilja

 

Það eru rétt um 50 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.05.2022 19:09

Tæplega 70 ær eftir

Alltaf góður þessi matur. Damian sá um grillið og gerði það 

vel. Æðislegur matur og vel grillað hjá honum

 

Afslöppun

Það fengu nokkrar að fara út í dag

 

 

 

Svo voru þær settar inn aftur

 

Það eru tæplega 70 ær eftir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.05.2022 15:31

Litla Gorma

18-403 Læpa 

Systkinalúr

Nú er herbergisfélaginn minn fluttur út úr hjólhýsinu

Já litla Gorma er komin í sína íbúð og bíður eftir því að

verða aðeins stærri svo hún geti eignast mömmu

 

Afslöppun

 

Það eru eitthvað um 80 ær eftir að bera

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.05.2022 18:56

Sauðburður

Kl. 4 í nótt

 

 

Þessi, 19-463 Linsa, bar í nótt og það tók ekki nema 10 mín.

að bera báðum lömbunum. Hún kom með hrút og gimbur 

undan 20-605 Bæron

 

 

 

 

 

 

Fyrra lambið, gimbur, komin í heiminn

Og byrjuð á seinna lambinu, hrútnum

 

 

 

Bæði komin á 10 mín.

 

 

 

 

Molinn kveður

 

05.05.2022 17:42

Fyrstu lambærnar settar út

Systurnar 18-403 Læpa og 18-404 Læna báru báðar í gær. 

Þær voru báðar sónaðar með tveim fóstrum. Læpa kom 

með tvö, en hefur farið á stað með þrjú. Við vöndum undir 

hana, því við vorum með aukalamb sem við vorum í

vandræðum með þegar hún bar. Læna kom hinsvegar með 

þrjú og nú eru þær báðar með þrjú. Tíminn leiðir þaðsvo  í ljós 

hvort það þurfi að taka undan þeim

 

Þær hafa það gott í refaskálanum

Við settum nokkrar lambær út í dag. Þær voru svo settar inn

seinni partinn í dag vegna veðurs

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.05.2022 20:14

Á sauðburðarvaktinni

Litla lambið er í góðum gír. Það er svo sprækt. Það fær að 

vera inni í hjólhýsi hjá mér þangað til að það eignast mömmu

Sauðburður heldur áfram. Nú eru rétt um 120 ær bornar

Á sauðburðarvaktinni. Litla lambið að skoða sig um smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

03.05.2022 19:40

Um 90 ær bornar

Svona var ástandið í morgun

Og það er búið að snjóa/slydda í allan dag. Vonandi verður 

þetta ekki svona í marga daga

Það er búið að setja upp þessa fínu einstaklingsstíur í

fjárhúsin. Nóg pláss

 

Það eru rétt um 90 ær bornar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

02.05.2022 19:21

Tæplega 70 ær bornar

16-287 Molla með lömbin sín þrjú undan 21-705 Kalda.

Þrílemburnar riðja úr sér lömbunum. Mjög margar búnar 

að bera og gengið vel 

Það eru fleiri en mannfólkið þreytt á sauðburði. Þessi var 

steinsofandi í nótt

14-143 Kiða var sónuð með fjögur. Hún bar í dag og átti

þessi fallegu lömb. Tvo hrúta (annar kom dauður) og tvær

flottar gimbrar. Þær eru móflekkóttar smiley

 

Það eru rétt um 70 ær bornar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

25 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

28 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

26 daga

Tenglar