Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 3005
Gestir í dag: 421
Flettingar í gær: 12415
Gestir í gær: 319
Samtals flettingar: 948507
Samtals gestir: 51146
Tölur uppfærðar: 8.5.2024 23:20:01

Færslur: 2022 Júlí

16.07.2022 17:49

Eyjafjörður

Þessi ömmu og afa gullmoli, varð 6 mánaða fyrir tveim

dögum. Við hittum hana aðeins í dag heart Birtan aðeins of 

mikil fyrir hana heart

Við fórum rúnt inn í Eyjafjörð

 

Veðrið var mjög gott

Hólavatn. Vatnið var spegill

 

Mjög flott

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.07.2022 18:47

Seinni áburðardreifing

Við fengum verktaka til að bera áburð á túnin

Við kveiktum smá eld í dag, til að geta grillað sykurpúða. Það

er alltaf fjör

Í gær fórum við rúnt á húsbílnum. Við keyrðum á Blönduós,

fórum svo fyrir skagann. Svakalega gott veður

Skagaströnd. Fæðingarstaður minn

Drangey. Við eigum nú eftir að fara með strákana þangað

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.07.2022 18:38

T137

21-009 Valía. Hún var að greinast með arfgerðina T137

Myndin er tekin 22. október 2021

Hér er hún með hrút og gimbur

 

Við tókum einungis sýni úr 20 kindum

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

13.07.2022 18:36

Þrílemburnar keyrðar á fjall

Við jörðuðum Týra í garðinum okkar í morgun

Strákarnir voru duglegir að hjálpa til

 

Elsku Týri, hvíldu í friði heart

16-271 Öld með gimbrar undan 21-701 Brúsa og hrút undan

17-311 Selju og 21-705 Kalda

16-270 Sif með tvo hrúta og eina gimbur undan 21-703 Jalla

16-276 Urta með hrúta undan 20-605 Bæron

Systurnar Læna og Læpa, og Eyrún með þríbbana sína

17-357 Dimitría með tvo hrúta og eina gimbur undan

21-703 Jalla

19-483 Blökk með tvær gimbrar og einn hrút undan

18-591 Vita. Fjórða lambið, gimbur fór undir 17-378 Kleópötru

Systurnar18-403 Læpa og 18-404 Læna. Læpa er með hrúta

undan 20-603 Sagosen og hún er líka með hrút undan

Framtíð og 18-593 Hamri. Við gerðum hana þrílembda.

Læna er með tvo hrúta og eina gimbur undan Sagosen

18-424 Duna með gimbur undan  19-597 Ótta og gimbur 

undan 21-009 Valíu og 21-706 Hnikari. Duna var sónuð með

þrjú, en kom með eitt pínulítið, lifandi (mórauða)

16-286 Dríla með tvær gimbrar undan 21-705 Kalda

 

15-619 Eyrún með gimbrar undan 18-591 Vita og hrút undan

17-314 Slettu og 21-705 Kalda. Við gerðum Eyrúnu þrílembda

17-329 Reka með hrút og gimbur undan 21-705 Kalda og 

hrút undan 18-425 Dælu og 18-591 Vita. Við gerðum Reku

þrílembda

 

Við keyrðum þrílembunum, sem eru 10, og tvílembunum

sem báru seint eða í júní, sem eru 6, inn á Myrkárdal. Þær

voru frelsinu fegnar. Nú eru bara hrútarnir og þrjár ær hér

heima

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.07.2022 17:14

Búið að keyra öllum rúllunum heim

Þórður að koma með síðustu rúllurnar neðan af engi

Vel gert Þórður snillingur!!

Hann er nánast búinn að sitja í vélunum í 9 daga, stanslaust.

Duglegur heart

 

Elsku Týri er kominn í sumarlandið. Hann var orðinn gigtveikur.

Átti erfitt með að standa upp. Nú eru þeir Huginn litli að 

leika sér saman heartheartheart

 

 

 

Hvíldu í friði elsku Týri. Þín verður sárt saknað heartheartheart

 

 

Þessi ömmu og afa gullmoli er 8 ára í dag heart Til hamingju 

elsku Haukur Nói minn heartheartheart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.07.2022 15:45

Rúllur á enginu

Við fórum niður á engi og gengum frá endum og merktum

rúllurnar

Strákarnir voru duglegir að vanda. Við vorum ekki lengi að 

merkja og ganga frá endum á 95 rúllum

Þessi fylgdist með að við gerðum þetta vel

Þórður keyrði heim öllum rúllunum af stykki 7, 32 rúllur

Hann fór svo eina ferð af stykki 6. Þá á hann eftir að fara 

þrjár ferðir. Það voru 63 rúllur á stykki 6

Hann er búinn að standa sig alveg svakalega vel í þessum

heyskap. Ég átti að vísu ekki von á öðru með hann heart

Þegar við vorum að ganga frá og merkja rúllurnar, þá sáum

við td. þessa flugu. Ég veit ekki hverskonar fluga þetta er. 

Hún er græn að lit. Minnir á engisprettu smiley

Svo sáum við svakalega margar lúsmý flugur. Þessi til hægri

er lúsmý

Þær eru mjög litlar

Þetta er lúsmý. Þær virðast stórar á þessari mynd, en ég tók

myndina mjög nálægt þeim, þá virðast þær stórar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

10.07.2022 19:05

Fyrri heyskap lokið

Þórður að garða. Tilbúið að rúlla

Það voru 63 rúllur á stykki 6 og 32 á stykki 7. Samtals 95 rúllur

 

Það er þá búið að rúlla 196 rúllur í fyrri slætti

Þessi gullmoli hélt upp á 8 ára afmælið sitt í dag

Hann verður 8 ára 12. júlí. Flottur ömmu og afa strákur

Hann var með pokemon þema. Flott pokemon terta sem

þau bökuðu. Takk fyrir okkur elsku gull heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.07.2022 16:09

Heyskapur á enginu

Þórður sló bæði stykkin í gær

Og hann snéri á þeim tvisvar í dag. Vonandi verður hægt

að rúlla þetta á morgun

Sérstakur himinn í morgun

Við skruppum niður á engi í morgun

Fjórir vinir

Svo var það Gáseyrarfjaran. Þeir gátu dundað sér þar

Og þessir líka

 

Krían með síli handa unganum sínum

 

 

Verið að verja sig fyrir kríunni

 

Svo var farið í sund á Þeló

Og líka tekið hopp

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

08.07.2022 14:29

Fyrri heyskapur á enginu

Garðvinna hjá þessum

Þórður kláraði að keyra heim rúllunum. Þarna nær hann í 

síðustu rúlluna

101 rúllur í stæðunni

 

Síðasta rúlllan sett í stæðuna

Fyrri heyskap lokið hér heima

Hann slappar ekkert af. Hann er byrjaður að slá niður á engi

Það eru tvö stykki þar, (stykki 6 og 7)

 

Hann kláraði að slá á enginu. Hann er duglegur karlinn heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.07.2022 19:17

Heyrúllur

Við gengum frá endum og merktum rúllurnar

Strákarnir voru duglegir og já mjög duglegir að ganga frá

endunum og merkja

 

Vel gert hjá þeim

 

Vel gengið frá endunum

Þórður að setja rúllur á vagninn, til að keyra heim

 

Og ég keyrði þessum rúllum heim, úr fjallsstykkinu. Ég held 

að ég hafi verið með í maganum allan tímann meðan ég var

að keyra heim. Ég er svo lítil dráttavélakerling. Þegar ég var 

krakki, þá rifust systkini mín um að keyra dráttarvélar meðan

ég var fegin að sleppa við að þurfa að keyra. En þetta gekk

vel hjá mér. Ég er samt ekki spennt að taka þetta að mér

laughlaughlaugh

 

Þórður er búinn að keyra öllu heim, nema af fjárhússtykkinu

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.07.2022 08:58

Rúllað í dag

Þórður snéri á stykki 1 og 5, í morgun. Hann garðaði svo upp

á þeim í dag. Nú eru öll stykkin tilbúin til að geta rúllað

Búið að rúllla allt
 
 
 

Stykki 1 slegið 4. júlí. Snúið þrisvar. Rúllað 6. júlí. 9 rúllur

Stykki 3 slegið 3. júlí. Snúið tvisvar. Rúllað 6. júlí. 37 rúllur

Stykki 4 slegið 4. júlí. Snúið tvisvar. Rúllað 6. júlí. 5 rúllur

Stykki 5 slegið 4. júlí. Snúið þrisvar. Rúllað 6. júlí. 20 rúllur

Stykki 8 slegið 3. júlí. Snúið tvisvar. Rúllað 6. júlí. 16 rúllur

Stykki 9 slegið 3. júlí. Snúið tvisvar. Rúllað 6. júlí. 14 rúllur

Samtals 101 rúllur í fyrri slætti hér heima 

 

Þetta eru allt tún sem voru ekki friðuð. Kindurnar voru á þeim

þangað til að við fórum að heyja. Þá rákum við þær upp í 

fjallshólf

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.07.2022 17:22

Enn er heyskapur

Þórður var byrjaður að snúa kl. hálf sjö í morgun. Það var 

sól þá og smá vindur. Hann snéri öllu einu sinni

Vinnuskólinn á Möðruvöllum heldur áfram. Það er verið að 

raka þarna

Þessi er líka að vinna. Það er malarflutningur hjá honum

Og enn er verið að raka

Duglegir

 

 

 

Þórður að garða upp

Hann tekur sig vel út í því hlutverki og gerir það vel

Kaffitíminn tekinn úti í góða veðrinu

Enn að garða. Hann garðaði upp, á túni 3, 4, 8 og 9

Tilbúið fyrir rúlluvélina. Þetta verður vonandi rúllað á morgun

Ég hefði gaman að vita hvaða skordýr þetta er. Það er ca 2 mm

og stekkur. Ég held að það fljúgi ekki . Það eru svakalega margar

svona í grasinu. Veit einhver hvað þetta heitir?

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.07.2022 17:53

Heyskapur

Þórður kláraði að slá hér heima, fjallsstykkið (stykki 5),

frímerkið (stykki 4) og Nunnuhólsstykkið (stykki 1). Þegar 

hann var búinn að slá þá snéri hann á öllum stykkjunum

Ég sló með orfi, meðfram veginum

 

 

Strákarnir rökuðu

 

Við vorum að í allan dag. Ég að slá og strákarnir að raka.

Þetta er orðið mun skárra en það var. Eitthvað verður haldið

áfram á morgun

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

03.07.2022 15:50

Heyskapur

Þórður sló fjárhústúnið (stykki 3) og túnin við íbúðarhúsin

(stykki 8 og 9), í dag. Það er rigning í dag en það kemur 

vonandi þurrkur næstu daga

Fjárhústúnið

Stykkið fyrir neðan íbúðarhúsin. Búið að slá það

 

Við tókum niður girðinguna fyrir neðan íbúðarhúsin.

Strákarnir voru svakalega duglegir að hjálpa mér

 

 

Verið að ná staurunum upp. Annar var á liðléttingnum

og hinn hélt í strappareimina

 

 

 

Þetta gekk svakalega vel hjá okkur

Við rúlluðum netinu upp

Svo voru staurarnir settir á kerruna

 

Liðléttingar snillingur

Góðir vinir

Girðingin farin þannig að hægt var að slá túnið

 

Strákarnir standa sig mjög vel í vinnunni hér

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.07.2022 16:15

Baugasel

Við fórum í fjórhjólaferð í dag. Við keyrðum 53 km.

Áfangastaðurinn var Baugasel. Strákarnir stóðu sig

svakalega vel að keyra

Damian

Bubbi

Þórður og Alexander

Alexander

Ég á nýja hjólinu

Smá stopp við Mela

Skuggabrúin

 

Við tókum litla hjólið af kerrunni, við Bug. Alexander keyrði

þaðan í Baugasel

Á ferðinni

Féeggstaðabrúin

Brúin við Baugasel

Við vorum rétt rúman einn og hálfan tíma, að keyra

í Baugasel

Við vorum svakalega heppin með veður

Strákarnir voru svo ánægðir með ferðina

Það má nú ekki gleyma nestinu

Við reynum að fara allavega einu sinni á ári í Baugasel

Hann fékk að fara með nokkra monsters truck með sér

Ég tók drónann með og hér er útkoman. Baugasel

Baugasel

Séð inn Barkárdal

Og niður Barkárdal

Baugasel

Baugasel

 

Fimman, Möðruvöllum 3

 

Haldið heim á leið

 

Alveg hreint frábær dagur heart

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

24 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

27 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

25 daga

Tenglar