Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 195
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 3139
Gestir í gær: 439
Samtals flettingar: 948836
Samtals gestir: 51198
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 02:00:42

Færslur: 2023 Janúar

16.01.2023 17:50

Kindur

Þessi elskar að vera á snjósleðanum. Hann er að vísu bilaður

að því leiti að rafstartið er bilað. Við þurfum að spottatoga

hann í gang. Ef maður bakkar, þá drepur hann á sér og fer

ekki sjálfur í gang eins og hann á að gera. Þannig að það er 

ekki hægt að bakka 

Þórður ákvað að fara með hann í viðgerð. Þetta er sleði sem

er í ábyrgð

22-013 Vanadís undan 21-009 Valíu og 21-706 Hnikari

22-027 Loppa undan 19-460 Larisu og 20-607 Dúa

22-017 Lumbra 20-508 Logey og Hnikari

22-020 Skel undan 14-254 Skoppu og 21-703 Jalla

18-409 Elíza

15-236 Hexía

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

15.01.2023 21:17

Síðan mín, loksins komin í lag

Þegar einn fer, þá koma tveir í staðinn smiley

Þessi gula hækkar með hverjum degi og það styttist í að við

fáum að sjá hana

22-018 Kópelía undan 14-143 Kiðu og 21-703 Jalla

22-019 Krukka undan Kiðu og Jalla

22-022 Skúta undan 19-453 Sónötu og Jalla

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

14.01.2023 14:04

Eins árs gullmoli

Þessi fallegi ömmu og afa gullmoli er 1 árs í dag. Hún er svo

falleg og dugleg. Tók fyrstu skrefin 9 mánaða og hefur

ekki stoppað síðan. Hún er mikið fyrir útiveru og borðar 

mikið af snjó. Knús á þig elsku nafna mín heart

Vinnumennirnir hjá okkur þessa helgi 

Damian er svo duglegur í skákinni. Hér er hann á skákmóti í

dag og staðan var svona eftir daginn

 

 

 

 
 
 

 

Molinn kveður

 

 

13.01.2023 18:22

Föstudagurinn 13.

Við höfum ekki séð neina ær vera að ganga síðan

28. desember. Það er náttúrulega snilld ef það stenst smiley

Nú er þessi stúlka farin frá okkur

Í dag fóru tvö og einn kom í staðinn smiley

Sólin að kíkja

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

12.01.2023 18:00

Nánast dagleg sjón

Svona er þetta nánast á hverjum degi

Kvölds og morgna

Já þessi gula nálgast

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

11.01.2023 20:22

Styttist í sólina

Það er nú ekki mikill snjór hjá okkur eins og þið sjáið

Og það styttist í þessa gulu

 

 

 

 

Molinn kveður

 

10.01.2023 13:52

Snjóhúsagerð

Í nótt kom smá skafl í garðinn. Auðvitað var tækifærið nýtt

og búið til snjóhús

Mjög flott hjá þeim

Á meðan einn fór á æfingu léku þessi þrjú sér úti í snjónum

Og þessi nýtti sér snjósleðann í dágóðan tíma

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

09.01.2023 15:49

Slydda og skafrenningur

Veðrið í dag er bæði búið að vera slydda og svo breyttist í

skafrenning þegar kólnaði. Það er líka búið að vera rok

Þórður hreinsaði snjóinn af götunni. Hann var mjög blautur

og það var erfitt að blása. Gott að hreinsa þennan blauta snjó

áður en hann frýs

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

08.01.2023 19:19

Gangmál nr. 2 að taka enda

Nú fer gangmál númer tvö, að taka enda. Það hefur engin ær

gengið síðan 28. desember. Ef það breytist ekki, þá byrjar

sauðburður 1. maí og verður búinn um 20. maí. Þetta verður

þá í fyrsta skipti sem sauðburður tekur svona stuttan tíma.

Vonandi breytist þetta ekki smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

07.01.2023 20:02

Ríkidæmi

Þessir ömmu og afa gullmolar komu í heimsókn í dag. Það 

var upplagt að fá mynd af okkur saman heart

Við fórum á sleðann

Og nafna mín vildi koma með. Hún var ekki hrædd. Bróðir

hennar keyrði okkur og gerði það vel

Tunglið í morgun

Morgungjöf

Þessi gullmoli kom í fjárhúsin í dag. Hann var að velja sér

kind. Hann var að hugsa um þessa (Litfríð), en ég er ekki 

alveg viss hvernig valið hjá honum endaði., hvort það var

þessi eða einhver önnur

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

06.01.2023 20:42

Þrettándabrenna í Hörgársveit

Við fórum á þrettándabrennu sem var í krúsunum norðan

við Þelamerkurskóla

 

Damian

Alexander

Bubbi

Kveikja í blysi

 

 

 

 

 

Flott brenna

Fréttamenn ruv mættu á svæðið

Og voru í beinni

Þau tóku viðtal við þessa flottu konu

Damian og Alexander komu í mynd. Þeir eru þarna til vinstri

Og Bubbi kom sér inn á mynd. Hann er þarna til vinstri að

veifa

 

Eftir brennuna fórum við í kaffi hlaðborð í Þelamerkurskóla.

Þar voru kræsingar á borðum. Það var svo bingó á eftir og 

við ákváðum að fara bara heim, því það voru svo margir

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

05.01.2023 19:27

Feðgar í heimsókn

Agla er byrjuð að éta. Hún þorir að vísu ekki að fara lengra.

Það kemur hjá henni. Það er þessi hreina. Við settum hana 

hjá smálömbunum. Hún heitir Agla í höfuðið á Agli sem náði

þeim mæðgum í gær

Mamma hennar var villt. Hún stökk hiklaust yfir allt. Hún 

gerir það ekki lengur, því hún var ekki sett á

Það er með ólíkindum að þeir félagar hafi farið á sleða þarna

upp í fjallið. Þetta er fyrir ofan hjá okkur. Þær mæðgur voru

þarna

Já þetta er svakalegt

Þessir flottu feðgar, Friðrik og Leó, eru hérna fyrir norðan og

auðvitað prufuðu þeir snjósleðann

Ömmu og afa gullmoli að leika við Alexander, í snjónum

Þessi fékk að keyra sleðann. Stúlka sem er hjá okkur í nokkra

daga. Nú erum við 6 á Möðruvöllum 3

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

04.01.2023 20:51

Útigangs-Blanda

Allt getur nú skeð. Haldið þið ekki að þessi hafi heimst með

gimbur, í dag. Það var enginn annar en Egill vinur okkar í 

Skriðu og Baldur Garðarsson sem náðu þeim mæðgum. Þeir

voru á sleða. Hún reyndi eins og hún gat að forða sér, en þeir

höfðu betur. Þetta er Blanda, sem var úti allan síðasta vetur.

Hún ætlaði sér að endurtaka þann leik, en sem betur fer 

mistókst það hjá henni. Takk fyrir strákar yesyes

Blanda

Og dóttir hennar

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

03.01.2023 19:17

Krossa putta

Ég er að vonast til að þessar sem voru sæddar, hafa haldið.

Við sáum þær allavega ekki ganga upp

16-270 Sif

19-469 Æðey

Sif og Æðey voru sæddar með Austra

 

18-409 Elín

20-502 Þykk

Elín og Þykk voru sæddar með Gimsteini

 

15-236 Hexía

18-409 Elíza

Hexía og Elíza voru sæddar með Fjalla

 

Já vonandi hafa þessar ær haldið smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 

02.01.2023 19:58

Útivera

Það var fallegur himinn í morgun

Strákarnir léku sér í snjónum. Þeir skiptust á að keyra sleðann

og draga hina á slöngu

Gaman að eiga snjósleða og getað leikið sér

 

Það hefur engin kind gengið upp síðan 28. des. þegar þessar

fjórar sæðingarær gengu upp. Vonandi er þetta búið og engin

gengur upp eftir þetta. Staðan á sauðburði er þá svona:

 

1. maí eiga 10 ær tal

2. maí eiga 2 ær tal

3. maí eiga 14 ær tal

4. maí eiga 4 ær tal

5. maí eiga 13 ær tal

6. maí eiga 8 ær tal

7. maí eiga 7 ær tal

8. maí eiga 12 ær tal

9. maí eiga 7 ær tal

10. maí eiga 10 ær tal

11. maí eiga 9 ær tal

12. maí eiga 9 ær tal

13. maí eiga 8 ær tal

14. maí eiga 8 ær tal

15. maí eiga 10 ær tal

16. maí eiga 2 ær tal

18. maí eiga 2 ær tal

20. maí eiga 4 ær tal

5 ær eru ekki með fangdag, þannig að þær bera

á einhverjum af þessum dögum.

Samtals 144 ær sem eiga að bera. Það væri gott ef

þetta væri bara svona og mundi ekki breytast smiley

 

 

 

 

 

Molinn kveður

 

 



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

25 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

28 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

26 daga

Tenglar