02.07.2008 10:46
Já komið þið sæl og blessuð !!!!!!
Jæja potturinn er æði. Við vígðum hann á sunnudaginn eins og þið vitið, og við erum búin að fara í hann á mánudag og í gær. Og förum líklegast líka í dag. Í gær var svo mikil rigning, að það var varla hægt að segja að það hafi verið nauðsinlegt að fara í sturtu. Bara sjampó í hárið og bíða aðeins. En við notum auðvitað alltaf sturtuna. Og ég verð að segja að hann Þórður er algjör snillingur. Hann getur auðvitað gert allt sem honum dettur í hug að gera og gerir það snilldarlega. Hann fær 11 í einkunn af 10 mögulegum fyrir þetta. Þetta er svo vel gert hjá honum. OG ÉG ER SVO ÁNÆGÐ MEÐ ÞETTA.
Jæja nú er Helgi Björns í spilaranum hjá mér. Þessi diskur sem hann var að gefa út er algjör snilld.
Það er algjör sæla hjá mér núna ég er í fríi fram yfir versló. Júlli og Siggi koma 18. júlí og verða í 16 daga samfellt. Þeir fara aftur 3. ágúst. Við verðum mikið í Lyngbrekku í fríinu okkar. Það er svo mikil sæla.
Molinn kveður.