Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 814
Gestir í dag: 53
Flettingar í gær: 875
Gestir í gær: 50
Samtals flettingar: 908889
Samtals gestir: 47970
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 18:31:14

06.06.2011 23:34

Lömb

Kindurnar hafa það gott í kuldanum. Við förum á hverjum degi og gefum þeim brauð. Lömbin hafa stækkað mikið, og sum þeirra eru komin með stór horn. Ég gaf brauðið áðan, og ég var í mikilli hættu. Tabbý beit mig til blóðs, og hnéð fékk að finna fyrir þeim. Ég er ekki hissa þótt Þórður hafi dottið í þessum troðningi.
Til hamingju með daginn Helgi Steinsson, afmælisstrákur.
Ég fékk litla ömmu bumbubúann í heimsókn, um helgina, ásamt mömmu hans. Guðrún kom á föstudaginn og fór aftur á sunnudag. Hún var að kíkka á lömbin, áður en þau fara á fjall.
Ég byrjaði að vinna 23. maí, eftir allt fríið, og er bara búin að fá einn frídag síðan þá.
Við fórum í sumarbústaðinn okkar á laugardag, þegar ég var búin að vinna, og svo aftur á sunnudaginn. Við grilluðum báða dagana. Hafsteinn, Fanney, Helga Dís, Ríkharð Pétur, Þórhallur, Birta og Sverrir, komu í mat á sunnudaginn. Nú förum við að verða meira í Lyngbrekku.
Siggi og Júlli voru hjá okkur um helgina.


Molinn kveður.



clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

4 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

6 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

4 daga

Tenglar