22.06.2011 22:10
Nú á ég að fara í myndatöku, á hnénu, og til læknis, á þriðjudaginn. Læknaritari, á sjúkrahúsinu hringdi í mig í dag og sagði mér að koma. Líklegast á að fara að gera eitthvað í þessum málum, eða ég vona það allavegana.
Nú eigum við ekki lengur hænur. Við gáfum þær í fyrradag. Garðar Steinsson fékk þær. Það kostar svo mikið að fara og gefa þeim á hverjum degi. Svo vantar okkur pláss í haust fyrir gimbrar, þannig að þetta var besta lausnin. Ég sé nú mikið eftir þeim greyjunum.
Ég á bara eftir að vinna tvo daga, og þá er ég komin í sumarfrí í fjórar vikur.
Molinn kveður.