14.09.2012 22:12
Jæja þá er nú búið að reka inn úr hólfinu hjá Helga á Syðri-Bægisá. Við fengum 3 fullorðna hrúta, 32 ær og 47 lömb. Þá eru komin 99 stk. á Möðruvelli.
ær 38, lömb 58 og hrútar 3 = 99 stk.
Okkur vantar 14 fullorðnar og 22 lömb. Vonandi koma þær á morgun. Líklegast er eitt lamb dautt, því við erum búin að sjá eina í sumar, sem hefur ekki verið með lambið sitt. Það er hún Gíma. Ég var samt að vona að það hefði farið undan, en ekki drepist. Litla lambið sem ég sá með Klukku í sumar, er lambið hennar Míu, eins og mig grunaði. Það hefur farið undan strax. Það er svo lítið og krúttlegt. Ég tók nokkrar myndir og er búin að setja þær hér inn. Það var rigning, og ekki mikið hægt að taka myndir. Ég verð að bæta úr því á næstu dögum.
Molinn kveður.