Það er búið að ákveða að Karlskofaspildan og Ysta spildan niður á engi verða ekki slegnar. Þá er heyskap lokið hjá okkur. 350 rúllur og töðugjöld
Ég fer reglulega kindarúnt. Þessi fallega gimbur er fjórlembingur undan Brák. Alveg pottþétt lífgimbur.
Þetta er bróðir hennar. Hann er líka mjög flottur.
Ég er orðin mjög spennt fyrir réttum, 21 dagar í þær.
Nú er orðið rólegra hjá mér. Sumardvölin búin, og allt komið á rétt ról. Það voru upp í sex börn hér í einu þegar mest var. Það gekk samt alveg ótrúlega vel.
Við erum búin að ákveða að vera með Huginn í eitt til tvö ár. Ég er búin að segja upp á Búgarði. Við Huginn ætlum að hafa það gott í fjárhúsunum í vetur
Myndir komnar inn
Molinn kveður.