3. Fjárhústúnið var slegið 5. júlí, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 7. júlí og það voru 31 rúllur þar. Það var svo mikið kal í vor og já rótbeitt þar til féð fór á fjall.
Annar sláttur: Slegið 16. ágúst, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 18. ágúst og það voru 29 rúllur þar
4. Frímerkið norðan við skjólbeltið var slegið 4. júlí, snúið þrisvar sinnum. Rúllað 7. júlí og það voru 14 rúllur þar.
Annar sláttur: Slegið 16. ágúst, snúið einu sinni. Rúllað 18. ágúst og það voru 3 rúllur þar
5. Fjallstykkið var slegið 4. júlí, snúið þrisvar sinnum. Rúllað 7. júlí og það voru 25 rúllur þar.
Annar sláttur: Slegið 16. ágúst, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 18. ágúst og það voru 13 rúllur þar
6. Prestshólminn var sleginn 10. júlí, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 12. júlí og það voru 70 rúllur þar.
Annar sláttur: Slegið 1. september, snúið einu sinni. Rúllað 2. september og það voru 41 rúllur þar
7. Karlskofaspildan og Ystaspilda (er í rauninni ein spilda) voru slegnar 9. júlí, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 12. júlí og það voru 82 rúllur þar.
Annar sláttur: Slegið 1. september, ekkert snúið. Rúllað 2. september og það voru 5 rúllur þar
Akramýrin slegin 23. ágúst, snúið tvisvar sinnum. Rúllað 25. ágúst og fengum við 51 rúllur þar
Þá er fyrri slætti lokið og alls fengum við 252 rúllur
Seinni slætti lokið og alls fengum við 142 rúllur
Þá eru rúllurnar fyrir næsta vetur 394
Molinn kveður