Helgarvinnumennirnir okkar. Búnir að vera mikið úti í dag
Þeir fengu að fara rúnt á fjórhjólakerrunni okkar. Það fannst þeim gaman. Fjögur gull í kerrunni
Hann fékk drulluslettur í framan og fannst það bara í fínu lagi
Nú eru þeir bræður búnir að saga hurðirnar í sundur til að fá betra loft í fjárhúsin. Þeir söguðu annan hurðavænginn að sunnan og líka annan hurðavænginn að norðan
Simmi við tvískiptu hurðina
Simmi að kíkja út. Þetta er snilld hjá þeim
Þarna eru þeir búnir að loka hurðinni. Þeir gerðu eins við hurðina að norðan
Bjössi með vini sína tvo. Mörk og Týra
Molinn kveður