18-406 Prinsessa lætur bíða eftir sér. Við erum búin að vakta hana í nokkra daga. Það er komið mikið undir hana, en ekkert skeður. Ég ætla að halda áfram að vakta hana
Lömbin hennar Túbbu
Gimbrarnar hennar Blöndu eru farin að tæta í sig hey
Hún grefur sig niður í heyið, eftir stráum
Fallegar
Ég fór til að athuga með geldféð. Mér sýndist það hafa það frekar gott
Ganga í heyinu að vild
Tóku sprettinn fyrir mig
Forystusauðirnir undan Prinsessu
Smálömbin
Aðeins smá sprettur
Þarna komast þau inn ef þau vilja
Þessi mætti hér í gær. Hann á eftir að pirra mig þegar ég fer að fljúga drónanum. Hann ræðst á drónann, þegar hann er kominn með unga
Séð heim að Möðruvöllum
Ég verð að vera með, og setja eins og eina mynd af þessari skútu. Þvílíka ferlíkið þessi
Molinn kveður