Í gær þegar við vorum að fara yfir ærnar, þá átti þessi ær að fá lit fyrir sláturfé (rauðan) Hún var geld í vor og átti þess vegna ekki að fá líf. Ég tók undir hana og fann að það var komið mikið júgur. Ég hélt samt að hún mundi ekki bera fyrr en eftir viku til hálfan mánuð. Í morgun þegar við fórum í fjárhúsin, þá var hún að bera. Það var bara haus sem kom og hann var orðinn bólginn og kaldur, en lambið á lífi. Ég komst inn með hálsinum og náði öðrum fætinum og tók það þannig út. Við vorum smá tíma að koma því af stað, en það tókst. Ég þurfti að ná í hitt lambið, því hausinn lá niður með. Það tókst vel og þeim heilsast vel. Tvær gimbrar hjá 15-272 Dúddu
Flottar gimbrar
Við vigtuðum lömbin. Við sendum í sláturhús á morgun
Molinn kveður