20-522 Glósa bar í morgun. Það voru talin í henni fjögur
fóstur. Fyrsta, annað og þriðja komu dauð. Nýlega dauð og
ekki stór. Fjórða lambið kom lifandi og var pínulítið.
Við vöndum undir hana tvö lömb. Eftir þrjá klukkutíma kom
svo fimmta lambið og það var lifandi. Það er þetta svarta á
myndinni. Þessi hvítu voru vanin undir hana. Við áttum ekki
von á henni fimmlembdri. Þau eru undan 21-704 Tandra.
Glósa er undan Nóa, þrílita hrútnum sem við áttum
|