Þetta er síðan hennar Birgittu Lúðvíks.


Flettingar í dag: 411
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 2322
Gestir í gær: 98
Samtals flettingar: 911856
Samtals gestir: 48105
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 05:34:23

Færslur: 2017 Nóvember

06.11.2017 18:01

351 hausar, það er nú flott

Við tókum restina af kindunum, inn í gær. Nú er allt komið á hús. Tommi kemur á morgun og rýjar restina


Þórður og Damian voru úti í frekar vondu veðri, 4. nóvember. Það snjóaði mikið


Við gáfum þeim úti í gærmorgun, áður en þær fóru inn í gærkvöld


Búin að gefa þeim


Og þær raða sér meðfram girðingunni


Það festist snjór í ullinni á þeim


Simmi og Helga komu á snjósleðanum uppeftir


Búið að smíða fyrir smálömbin inn í hlöðu. Þau eru 7, plús þrjú sem voru tekin í fóstur


Og lambhrútana. Þeir eru 9


Og líka fullorðnu hrútana. Þeir eru 9


Það fer mjög vel um þau þarna


Og nú eru fjárhúsin orðin stútfull emoticon og ævintýrið byrjað. Nú fær maður sér kaffi, að gjöf lokinni

Ásetningurinn veturinn 2017-2018 verður svona

Árgangur 09,        2 ær
Árgangur 10,      18 ær
Árgangur 11,      19 ær
Árgangur 12,      35 ær
Árgangur 13,      32 ær
Árgangur 14,      54 ær
Árgangur 15,      58 ær
Árgangur 16,      47 ær
Árgangur 17,      59 gemlingar
Hrútarnir eru 18. Fullorðnir 9 og lambhrútar 9
Smálömb eru 7
Svo eru tvö lömb, hrútur og gimbur sem heimtust eftir slátrun. Við eigum eftir að ákveða hvort þau verða send, eða bara höfð í vetur
Við erum með eina veturgamla fyrir Siddý, Möðruvöllum 2
Heildarfjöldi hjá okkur er 351, en það verða 355 hausar í húsunum í vetur


Molinn kveður


03.11.2017 21:55

Hundrað og ellefu teknar á hús

Við tókum 111 hvítar ær inn í gær, og Tommi kom og klippti þær í dag/kvöld.


Þær eru búnar að raða sér á garðana


Þessar þurfa að bíða aðeins lengur úti, eða þangað til á þriðjudag. Þær verða teknar inn fyrr, ef veðrið verður leiðinlegt, en þær verða rúnar á þriðjudaginn


Beðið eftir rúningi. Það er aðeins stærðarmunur á þeim


Molinn kveður


01.11.2017 17:17

Restin af kindunum verða teknar á hús á næstunni

Öll beit búin og þá er bara að gefa þeim úti þar til þær verða teknar á hús. Á föstudaginn tökum við líklegast um 100 kindur inn. Tommi ætlar að koma og klippa.


Full kerra af heyi, aftan í fjórhjólinu. Ég þurfti að ná í aðra kerru til að geta sett alla leið niður með girðingunni


Heyinu komið fyrir upp við girðinguna


Þær bíða við hliðið eftir tuggu


Þarna raða þær sér meðfram girðingunni


Búnar að raða sér og farnar að éta emoticon


Nói var settur á, bara svona upp á grín emoticon


Búið að rýja Nóa. Hann er nú alveg þokkalegur að sjá greyið. Hann stækkar í vetur emoticon


Nói litningur emoticon


Molinn kveður




clockhere

Nafn:

Birgitta Lúðvíksdóttir

Farsími:

820-7756

Afmælisdagur:

23. júlí, 1962

Heimilisfang:

Möðruvellir 3

Staðsetning:

Hörgársveit

Um:

Áhugamanneskja um sauðfjárrækt. Er með kindur á Möðruvöllum í Hörgársveit

Einar Breki, kom í heiminn

atburður liðinn í

12 ár

7 mánuði

6 daga

Haukur Nói, kom í heiminn

atburður liðinn í

9 ár

9 mánuði

8 daga

Birgitta Ósk, kom í heiminn

atburður liðinn í

2 ár

3 mánuði

6 daga

Tenglar